Hafa fengið 130 flotgalla frá VÍS

Guðný Helga Herbertsdóttir, framkvæmdastjóri sölu og þjónustu hjá VÍS, afhendir …
Guðný Helga Herbertsdóttir, framkvæmdastjóri sölu og þjónustu hjá VÍS, afhendir Hilmari Snorrasyni, skólastjóra Slysavarnarskóla sjómanna, flotgalla. Ljósmynd/VÍS

Hilmar Snorrason, skólastjóri Slysavarnaskóla sjómanna, tók á dögunum við tíu nýjum flotvinnubúningum frá VÍS. Um er að ræða þrettánda sinn sem VÍS veitir skólanum slíkan öryggisbúnað að gjöf, að því er fram kemur í fréttatilkynningu.

Þar segir að búningarnir nýtast nýtast nemendum sem og stjórnendum skólans þegar björgunaræfingar fara fram. Flotvinnubúningarnir sem gefnir hafa verið skólanum eru nú orðnir 130 talsins og er samanlagt verðmæti þeirra 40 milljónir króna.

„Forvarnir eru okkar hjartans mál og því erum við stolt af samstarfinu við Slysavarnaskóla sjómanna. Við viljum fækka slysum á sjó og erum þakklát fyrir að geta lagt okkar að mörkum til þess að auka öryggi sjómanna,“ segir Guðný Helga Herbertsdóttir, framkvæmdastjóri sölu og þjónustu hjá VÍS, í tilkynningunni.

Ljosmynd/VÍS

„Við erum þakklát fyrir stuðninginn því þetta styður með rausnarlegum hætti við skólann. Við viljum auka öryggi sjómanna og notkun flotvinnubúninga skiptir gríðarlegu máli ─ en dæmi eru um að slíkur búnaður hefur bjargað mannslífum á sjó. Sú staðreynd að allir sjómenn nemi við Slysavarnaskóla sjómanna ─ styður við öryggishegðun og öryggishugsun um borð. Þetta framlag VÍS skiptir okkur miklu máli, því við verðum að vera með nýja og heila flotvinnubúninga í kennslunni hverju sinni,“  er haft eftir Hilmari.

Þá er vakin athygli á að flestir nemendur Slysavarnaskóla sjómanna séu starfandi á fiskiskipum en samkvæmt lögum þurfa sjómenn bæði grunnmenntun og reglulega endurmenntun í öryggismálum og fer bókleg og verkleg kennsla, til dæmis í meðferð björgunarbúnaðar, fram um borð í skólaskipinu Sæbjörgu.

Flotgallarnir munu nýtast skólanum við björgunaræfingar.
Flotgallarnir munu nýtast skólanum við björgunaræfingar. Ljósmynd/VÍS

Veittu RNSA skráningarkerfi

Á síðasta ári afhenti VÍS Rannsóknarnefnd samgönguslysa (RNSA) atvikaskráningarkerfið ATVIK-sjómenn. Tilgangur þess er að skapa miðlægan gagnagrunn atvikaskráninga sem síðan getur verið grundvöllur forvarna sem draga úr slysum.

Kerfið var fimm ár í þróun hjá VÍS, en hefur verið breytt til að aðlaga það að þörfum RNSA. Jafnframt verða nú öll atvik skráð hjá nefndinni, en hafa hingað til verið skráð á þremur mismunandi stöðum.

„Þrátt fyrir að banaslysum hafi fækkað á sjó, þá er enn talsvert langt í land að fækka slysum hjá sjómönnum. Að meðaltali eru 170 sjóslys tilkynnt til Sjúkratrygginga Íslands á hverju einasta ári. Hins vegar er það áhyggjuefni að einungis 30% þessara slysa eru tilkynnt til Rannsóknarnefndar samgönguslysa ─ sem einmitt hefur það hlutverk að rannsaka slysin, greina þau og koma með tillögur að forvörnum. Þetta var gjöf frá VÍS til íslenskra sjómanna ─ samfélaginu til heilla,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 25.4.24 425,86 kr/kg
Þorskur, slægður 25.4.24 527,13 kr/kg
Ýsa, óslægð 25.4.24 191,99 kr/kg
Ýsa, slægð 25.4.24 150,72 kr/kg
Ufsi, óslægður 25.4.24 122,07 kr/kg
Ufsi, slægður 25.4.24 172,26 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 25.4.24 162,06 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

25.4.24 Austfirðingur SU 205 Línutrekt
Þorskur 7.439 kg
Ýsa 738 kg
Steinbítur 48 kg
Keila 21 kg
Karfi 12 kg
Samtals 8.258 kg
25.4.24 Hólmi NS 56 Grásleppunet
Grásleppa 3.357 kg
Þorskur 383 kg
Ýsa 23 kg
Samtals 3.763 kg
25.4.24 Magnús HU 23 Grásleppunet
Grásleppa 3.836 kg
Samtals 3.836 kg
25.4.24 Rún NS 300 Grásleppunet
Grásleppa 1.853 kg
Þorskur 296 kg
Skarkoli 100 kg
Samtals 2.249 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 25.4.24 425,86 kr/kg
Þorskur, slægður 25.4.24 527,13 kr/kg
Ýsa, óslægð 25.4.24 191,99 kr/kg
Ýsa, slægð 25.4.24 150,72 kr/kg
Ufsi, óslægður 25.4.24 122,07 kr/kg
Ufsi, slægður 25.4.24 172,26 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 25.4.24 162,06 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

25.4.24 Austfirðingur SU 205 Línutrekt
Þorskur 7.439 kg
Ýsa 738 kg
Steinbítur 48 kg
Keila 21 kg
Karfi 12 kg
Samtals 8.258 kg
25.4.24 Hólmi NS 56 Grásleppunet
Grásleppa 3.357 kg
Þorskur 383 kg
Ýsa 23 kg
Samtals 3.763 kg
25.4.24 Magnús HU 23 Grásleppunet
Grásleppa 3.836 kg
Samtals 3.836 kg
25.4.24 Rún NS 300 Grásleppunet
Grásleppa 1.853 kg
Þorskur 296 kg
Skarkoli 100 kg
Samtals 2.249 kg

Skoða allar landanir »