Eðalfang stefnir að mikilli uppbyggingu á Akranesi

Lóðin sem mun fara undir rekstur Norðanfisks ehf. er 25 …
Lóðin sem mun fara undir rekstur Norðanfisks ehf. er 25 þúsund fermetrar. Mynd/Akraneskaupstaður

Akraneskaupstaður og Brimilshólmi ehf., eitt dótturfélaga Eðalfangs, undirrituðu nýverið samning um lóð í grænum iðngörðum í Flóahverfi á Akranesi. Með samningnum tryggir Eðalfang sér aðgang að lóðum sem er yfir 25 þúsund fermetrar að stærð og hefur rétt til að byggja um 13 þúsund fermetra húsnæði á lóðinni, að því er fram kemur í tilkynningu á vef Akraneskaupstaðar.

Þar segir að lóðin sé staðsett í matvælahluta grænna iðngarða og verður lóðin afhent Eðalfangi til uppbyggingar á árinu 2024.

„Með því að tryggja sér lóð og byggingarétt í Kelduflóa 2 er fyrirtækjum Eðalfangs [gert] mögulegt að stækka starfsemi sína og ná fram markmiði sínu um að verða öflugir þátttakendur í næstu bylgju í sjávarútvegi á Íslandi sem er þegar hafin. Mikil tækifæri eru í aukinni verðmætasköpun með fullvinnslu afurða á Íslandi til útflutnings í samvinnu við eldisfyrirtækin [og á] sama tíma að halda áfram að starfa sem stærsti dreifingaraðili fiskmetis á innanlandsmarkaði. Eðalfang er með skýra framtíðarsýn og stefnir á að verða leiðandi í fullvinnslu á laxaafurðum á Íslandi. Reynsla starfsfólks og núverandi eigenda, gæðavottuð vinnsla og sérstaða Íslands varðandi gæði afurða og lægra kolefnisfótspors mun nýtast vel í þeirri sókn sem félagið undirbýr af krafti á erlenda markaði,“ segir í tilkynningunni.

Við undirskrift samnings um lóð. Aftari röð frá vinstri: Valgarður …
Við undirskrift samnings um lóð. Aftari röð frá vinstri: Valgarður Lyngdal Jónsson, forseti bæjarstjórnar, Inga Ósk Jónsdóttir, stjórnarmaður hjá Eðalfangi, Ragnar B. Sæmundsson, bæjarfulltrúi, Einar Brandsson, bæjarfulltrúi, Sævar Freyr Þráinsson, bæjarstjóri á Akranesi, Liv Aase Skarstad, bæjarfulltrúi, Líf Lárusdóttir, bæjarfulltrúi og Valdís Eyjólfsdóttir, verkefnastjóri hjá Akraneskaupstað. Fremri röð frá vinstri: Andri Gunnarsson, stjórnarformaður hjá Eðalfangi og Steinar D. Adolfsson, sviðsstjóri hjá Akraneskaupstað Ljósmynd/Akraneskaupstaður

Uppbygging á tveimur stöðum

Þá er vakin athygli á að Eðalfang samanstandi af tveimur matvælafyrirtækjum, annars vegar Eðalfiski ehf. í Borgarnesi og hins vegar Norðanfiski ehf. Akranesi. Bæði fyrirtækin framleiða sjávarfang en hvort á sínu sviði.

Eðalfiskur sérhæfir sig í framleiðslu, sölu og dreifingu á úrvals ferskum, frystum, reyktum og gröfnum laxaafurðum þar sem stór hluti afurða fyrirtækisins er seldur á erlendum mörkuðum.

Lax unninn í húsakynnum Eðalfisks.
Lax unninn í húsakynnum Eðalfisks. Ljósmynd/Eðalfiskur ehf.

Norðanfiskur ehf. sérhæfir sig í framleiðslu, sölu og dreifingu á úrvals sjávarfangi til veitinga- og stóreldhúsa á innanlandsmarkaði ásamt sölu neytendapakkninga í verslunum um land allt. Fyrirtækin eru með 62 starfsmenn og viðskiptavini í níu löndum. Eðalfang er einnig móðurfélag fasteignafélagsins Brimilshólma ehf.

Stefnt er að því að öll starfsemi Norðanfisks flytji frá Vesturgötu á Akranesi í Kelduflóa 2 ásamt því að Eðalfiskur muni fara af stað með nýja starfsemi á lóðinni í sama húsnæði.

Starfsemi Eðalfisks í Borgarnesi verður áfram á sínum stað, en þar er unnið að mikilli uppbyggingu í tengslum við fullvinnslu á íslenskum eldislaxi í samstarfi við Marel og dótturfélag þess Curio.

Mikil sóknarfæri

Andri Gunnarsson, stjórnarformaður Eðalfangs, kveðst hafa mikla trú á sóknarfærum félagsins og telur spennandi tíma framundan. „Með stækkandi starfsemi getum við fylgt enn frekar eftir söluaukningu og verða öflugir þátttakendur í næstu bylgju í sjávarútvegi á Íslandi.“

Hann segir skýra stefnu félagsins að halda starfseminni sem hefur byggst upp á Akranesi og Borgarnesi áfram á þessum stöðum. „Það er afar mikilvægt fyrir okkur að vernda góða ímynd okkar gæðavottuðu vinnslu og höfum við heillast af stefnu Akraneskaupstaðar innan grænna iðngarða þar sem saman fara sjálfbærni samfélagsins, góðir starfshættir, umhverfis- og loftslagsmál með aðlögun að hringrásarhagkerfinu ásamt góðum stjórnarháttum,“ segir Andri í tilkynningunni.

Norðanfiskur framleiðir fjölbreytt úrval sjávarfangs fyrir íslenska neytendur.
Norðanfiskur framleiðir fjölbreytt úrval sjávarfangs fyrir íslenska neytendur. LJósmynd/Norðanfiskur ehf.

„Það er afar ánægjulegt að stíga stór skref áfram með uppbyggingu matvælahluta Grænna iðngarða í Flóahverfi. Metnaður okkar er að hér muni starfa fremstu matvælafyrirtæki landsins og er mikill sigur fyrir vinnu okkar undanfarin ár að fá starfsemi fyrirtækja Eðalfangs á Akranes. Hér viljum við stuðla að grænni atvinnustarfsemi með betri nýtingu hráefna fyrirtækjanna sem starfa innan græna iðngarðsins og stuðlað er að þau starfi í hringrás fyrir hvert annað. Við getum stuðlað að því að frá byrjun geti fyrirtæki sem starfa innan græna iðngarðsins treyst því að hér sé starfsemi hrein og mengi ekki,“ segir Steinar Adolfsson, staðgengill bæjarstjóra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.7.24 548,75 kr/kg
Þorskur, slægður 26.7.24 540,89 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.7.24 373,46 kr/kg
Ýsa, slægð 26.7.24 153,60 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.7.24 161,40 kr/kg
Ufsi, slægður 26.7.24 208,59 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 26.7.24 543,91 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.7.24 Hafrafell SU 65 Lína
Steinbítur 958 kg
Þorskur 196 kg
Keila 38 kg
Skarkoli 26 kg
Samtals 1.218 kg
26.7.24 Arnþór EA 37 Handfæri
Þorskur 782 kg
Ufsi 133 kg
Samtals 915 kg
26.7.24 Þorleifur EA 88 Þorskfisknet
Þorskur 756 kg
Ufsi 482 kg
Samtals 1.238 kg
26.7.24 Gísli EA 221 Handfæri
Þorskur 2.199 kg
Ufsi 26 kg
Samtals 2.225 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.7.24 548,75 kr/kg
Þorskur, slægður 26.7.24 540,89 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.7.24 373,46 kr/kg
Ýsa, slægð 26.7.24 153,60 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.7.24 161,40 kr/kg
Ufsi, slægður 26.7.24 208,59 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 26.7.24 543,91 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.7.24 Hafrafell SU 65 Lína
Steinbítur 958 kg
Þorskur 196 kg
Keila 38 kg
Skarkoli 26 kg
Samtals 1.218 kg
26.7.24 Arnþór EA 37 Handfæri
Þorskur 782 kg
Ufsi 133 kg
Samtals 915 kg
26.7.24 Þorleifur EA 88 Þorskfisknet
Þorskur 756 kg
Ufsi 482 kg
Samtals 1.238 kg
26.7.24 Gísli EA 221 Handfæri
Þorskur 2.199 kg
Ufsi 26 kg
Samtals 2.225 kg

Skoða allar landanir »