Listgjörningur listamannsins Odee, Odds Eysteins Friðrikssonar, náði til þriggja heimsálfa. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Samherja, en listgjörningurinn svokallaði var lokaverkefni Odds og fólk í sér að hann skrifaði afsökunarbeiðni í nafni Samherja til Namibíu og birti á bresku léni.
Í tilkynningu Samherja segir að „tilraun til misnotkunar hafi verið send til 100 fjölmiðla á Íslandi, Noregi, Bandaríkjunum, Bretlandi, Kanada og Ástralíu.“
Þar segir enn fremur að Samherji hafi fengið vitneskju um þetta þegar félagið fékk lagt lögbann við ólöglegri notkun vörumerkja félagsins, meðal annars við notkun á léni í nafni Samherja í Bretlandi.
„Í upphafi lögbannskröfunnar var veittur hæfilegur frestur til varna og nú hefur forsvarsmaðurinn ráðið þrjá lögmenn í Bretlandi til að gæta hagsmuna sinna,“ segir í tilkynningunni sem Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, ritar undir.
Þar segir að fyrir liggi að ráðist hafi verið í víðtæka og kostnaðarsama aðgerð gegn vörumerki félagsins.
„Samherji hefur eingöngu beint sjónum sínum að því að verja mikilvæg vörumerki sín svo sem öll fyrirtæki myndu gera hvarvetna í heiminum en leitt hjá sér túlkanir á list og tjáningarfrelsi,“ segir þar einnig.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 18.9.24 | 561,08 kr/kg |
Þorskur, slægður | 18.9.24 | 601,90 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 18.9.24 | 242,37 kr/kg |
Ýsa, slægð | 18.9.24 | 294,73 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 18.9.24 | 220,11 kr/kg |
Ufsi, slægður | 18.9.24 | 284,94 kr/kg |
Djúpkarfi | 12.9.24 | 378,00 kr/kg |
Gullkarfi | 18.9.24 | 275,93 kr/kg |
Litli karfi | 16.9.24 | 10,34 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 18.9.24 | 314,00 kr/kg |
19.9.24 Björg EA 7 Botnvarpa | |
---|---|
Ufsi | 5.373 kg |
Karfi | 1.881 kg |
Samtals | 7.254 kg |
19.9.24 Langvía ÍS 416 Sjóstöng | |
---|---|
Þorskur | 146 kg |
Samtals | 146 kg |
19.9.24 Skinney SF 20 Botnvarpa | |
---|---|
Þorskur | 42.346 kg |
Ýsa | 2.332 kg |
Ufsi | 453 kg |
Hlýri | 344 kg |
Karfi | 344 kg |
Skarkoli | 272 kg |
Steinbítur | 244 kg |
Þykkvalúra | 48 kg |
Langa | 47 kg |
Sandkoli | 24 kg |
Keila | 16 kg |
Skötuselur | 14 kg |
Langlúra | 7 kg |
Samtals | 46.491 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 18.9.24 | 561,08 kr/kg |
Þorskur, slægður | 18.9.24 | 601,90 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 18.9.24 | 242,37 kr/kg |
Ýsa, slægð | 18.9.24 | 294,73 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 18.9.24 | 220,11 kr/kg |
Ufsi, slægður | 18.9.24 | 284,94 kr/kg |
Djúpkarfi | 12.9.24 | 378,00 kr/kg |
Gullkarfi | 18.9.24 | 275,93 kr/kg |
Litli karfi | 16.9.24 | 10,34 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 18.9.24 | 314,00 kr/kg |
19.9.24 Björg EA 7 Botnvarpa | |
---|---|
Ufsi | 5.373 kg |
Karfi | 1.881 kg |
Samtals | 7.254 kg |
19.9.24 Langvía ÍS 416 Sjóstöng | |
---|---|
Þorskur | 146 kg |
Samtals | 146 kg |
19.9.24 Skinney SF 20 Botnvarpa | |
---|---|
Þorskur | 42.346 kg |
Ýsa | 2.332 kg |
Ufsi | 453 kg |
Hlýri | 344 kg |
Karfi | 344 kg |
Skarkoli | 272 kg |
Steinbítur | 244 kg |
Þykkvalúra | 48 kg |
Langa | 47 kg |
Sandkoli | 24 kg |
Keila | 16 kg |
Skötuselur | 14 kg |
Langlúra | 7 kg |
Samtals | 46.491 kg |