LS vill hækka aflaviðmið um 4.000 tonn

Arthur Bogason, formaður landssambands smábátaeigenda, og Örn Pálsson framkvæmdastjóri sambandsins.
Arthur Bogason, formaður landssambands smábátaeigenda, og Örn Pálsson framkvæmdastjóri sambandsins. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Nýjustu tölur um afla strandveiðibáta benda til að ef aflaviðmiðun verður ekki aukin verða strandveiðar stöðvaðar nokkru fyrr en á síðasta ári. Þetta kemur fram á heimasíðu Landsambands smábátaeigenda.

Fimmtudaginn 22. júní fundaði LS með Svandísi Svavarsdóttur, matvælaráðherra, og óskuðu forsvarsmenn LS eftir að ráðherra kæmi í veg fyrir ótímabæra stöðvun strandveiða. Út frá laganna bókstaf verður það vart gert með öðrum hætti en að ráðherra hækki aflaviðmiðun. Ráðherra óskaði eftir formlegu erindi frá LS um málefnið sem nú er til skoðunar í matvælaráðuneytinu, kemur fram á heimasíðunni.

Vilja hækka aflaviðmið um 4.000 tonn

Þá var þorskafli dagana 24. til 26. júní alls 1.015 tonn en að lokinni löndun 26. júní losar þorskafli strandveiðibáta 7.566 tonn.

„Miðað við þorskafla sl. tíu daga gæti útgefinni aflaviðmiðun – 10.000 tonnum – verið náð í strandveiðivikunni 10. – 13. júlí. Verði ekki bætt við veiðiheimildum fyrir þann tíma muni Fiskistofa stöðva strandveiðar. Hér með er þess farið á leit við yður að þér komið í veg fyrir stöðvun veiðanna með því að hækka aflaviðmið um 4.000 tonn og tryggja með því jafnræði milli landshluta,“ segir í erindi sambandsins til ráðherrans. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 17.5.24 414,12 kr/kg
Þorskur, slægður 17.5.24 510,73 kr/kg
Ýsa, óslægð 17.5.24 392,47 kr/kg
Ýsa, slægð 17.5.24 265,68 kr/kg
Ufsi, óslægður 17.5.24 126,32 kr/kg
Ufsi, slægður 17.5.24 194,59 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 17.5.24 177,47 kr/kg
Litli karfi 15.5.24 8,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 6.5.24 150,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

17.5.24 Björn Hólmsteinsson ÞH 164 Grásleppunet
Grásleppa 612 kg
Þorskur 105 kg
Skarkoli 46 kg
Samtals 763 kg
17.5.24 Hrefna ÍS 267 Landbeitt lína
Ýsa 1.920 kg
Þorskur 1.459 kg
Steinbítur 759 kg
Skarkoli 85 kg
Karfi 11 kg
Samtals 4.234 kg
17.5.24 Fanney EA 48 Línutrekt
Þorskur 2.267 kg
Karfi 1 kg
Samtals 2.268 kg
17.5.24 Gullmoli NS 37 Grásleppunet
Grásleppa 1.033 kg
Samtals 1.033 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 17.5.24 414,12 kr/kg
Þorskur, slægður 17.5.24 510,73 kr/kg
Ýsa, óslægð 17.5.24 392,47 kr/kg
Ýsa, slægð 17.5.24 265,68 kr/kg
Ufsi, óslægður 17.5.24 126,32 kr/kg
Ufsi, slægður 17.5.24 194,59 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 17.5.24 177,47 kr/kg
Litli karfi 15.5.24 8,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 6.5.24 150,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

17.5.24 Björn Hólmsteinsson ÞH 164 Grásleppunet
Grásleppa 612 kg
Þorskur 105 kg
Skarkoli 46 kg
Samtals 763 kg
17.5.24 Hrefna ÍS 267 Landbeitt lína
Ýsa 1.920 kg
Þorskur 1.459 kg
Steinbítur 759 kg
Skarkoli 85 kg
Karfi 11 kg
Samtals 4.234 kg
17.5.24 Fanney EA 48 Línutrekt
Þorskur 2.267 kg
Karfi 1 kg
Samtals 2.268 kg
17.5.24 Gullmoli NS 37 Grásleppunet
Grásleppa 1.033 kg
Samtals 1.033 kg

Skoða allar landanir »