„Hafa aldrei upplifað aðra eins kolmunnaveiði“

Beitir NK er á landleið með 3.100 tonn af kolmunna. …
Beitir NK er á landleið með 3.100 tonn af kolmunna. Er þetta síðasti kolmunnafarmur Síldarvinnsluskipanna í bili. Ljósmynd/Síldarvinnslan: Helgi Freyr Ólason

„Menn hafa aldrei upplifað aðra eins kolmunnaveiði og að undanförnu,“ segir í færslu á vef Síldarvinnslunnar og hafa íslensku uppsjávarskipin hafa landað meira en 238 þúsund tonnum af kolmunna en útistandandi eru 71 þúsund tonn, samkvæmt skráningu Fiskistofu.

Beitir NK, uppsjávarskip Síldarvinnslunnar, er nú á landleið með 3.100 tonn af kolmunna úr færeysku lögsögunni og verður það síðasti kolmunnaafli útgerðarinnar í bili. Á útgerðin enn um 18 þúsund tonn óveidd en stefnt er að því að nýta heimildirnar í íslenskri lögsögu.

Í færslunni á vef Síldarvinnslunnar segir að veiðin hafi gengið mjög vel. „Veiðin hefur gjarnan verið um 100 tonn á togtíma á hinu svonefnda Gráa svæði syðst í færeysku lögsögunni. Skipin hafa kappkostað að koma með aflann vel kældan að landi og hefur hann reynst vera úrvalshráefni til vinnslu hjá fiskimjölsverksmiðjum Síldarvinnslunnar í Neskaupstað og á Seyðisfirði. Frá því eftir páska hefur veiðin verið samfelld og það sama er að segja um verksmiðjurnar, þær hafa sinnt framleiðslunni án hlés. Auk Síldarvinnsluskipanna, Barða, Beitis og Barkar, hafa Vilhelm Þorsteinsson EA og Hákon EA landað kolmunnaafla sínum hjá Síldarvinnslunni.“

Þá segir að verksmiðjur fyrirtækisins í Neskaupstað og á Seyðisfirði hafa samanlagt tekið við 120 þúsund tonnum af kolmunna frá áramótum. Þar af 68 þúsund tonn í Neskaupstað og 52 þúsund tonn á Seyðisfirði.

„Starfsmenn fiskimjölsverksmiðjunnar í Neskaupstað bíða spenntir eftir að Beitir komi með lokafarm kolmunnaveiðitímabilsins að landi en við vinnslu á honum á að taka í notkun nýjan þurrkara í verksmiðjunni. Þurrkarinn kemur frá Vélsmiðjunni Héðni og er stærsti þurrkarinn af nýrri gerð sem Héðinn framleiðir,“ segir í færslunni.

Hefst nú undirbúningur makrílvertíðar hjá Síldarvinnslunni og er ekki ólíklegt að haldið verði til veiða seint í júní.

Fram kom á málstofu Hafrannsóknastofnunar á dögunum að ekki megi gera ráð fyrir að makríllinn gangi í miklu magni inn í íslenska lögsögu í sumar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 31.5.24 366,91 kr/kg
Þorskur, slægður 31.5.24 494,07 kr/kg
Ýsa, óslægð 31.5.24 563,86 kr/kg
Ýsa, slægð 31.5.24 324,77 kr/kg
Ufsi, óslægður 31.5.24 97,30 kr/kg
Ufsi, slægður 31.5.24 257,80 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 31.5.24 341,38 kr/kg
Litli karfi 15.5.24 8,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 30.5.24 362,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

1.6.24 Sigurey ST 22 Grásleppunet
Grásleppa 3.104 kg
Þorskur 517 kg
Samtals 3.621 kg
1.6.24 Kári SH 78 Grásleppunet
Grásleppa 648 kg
Samtals 648 kg
1.6.24 Hafsvala BA 252 Grásleppunet
Grásleppa 521 kg
Samtals 521 kg
1.6.24 María SH 14 Grásleppunet
Grásleppa 1.984 kg
Samtals 1.984 kg
1.6.24 Hrói SH 40 Grásleppunet
Grásleppa 302 kg
Samtals 302 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 31.5.24 366,91 kr/kg
Þorskur, slægður 31.5.24 494,07 kr/kg
Ýsa, óslægð 31.5.24 563,86 kr/kg
Ýsa, slægð 31.5.24 324,77 kr/kg
Ufsi, óslægður 31.5.24 97,30 kr/kg
Ufsi, slægður 31.5.24 257,80 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 31.5.24 341,38 kr/kg
Litli karfi 15.5.24 8,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 30.5.24 362,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

1.6.24 Sigurey ST 22 Grásleppunet
Grásleppa 3.104 kg
Þorskur 517 kg
Samtals 3.621 kg
1.6.24 Kári SH 78 Grásleppunet
Grásleppa 648 kg
Samtals 648 kg
1.6.24 Hafsvala BA 252 Grásleppunet
Grásleppa 521 kg
Samtals 521 kg
1.6.24 María SH 14 Grásleppunet
Grásleppa 1.984 kg
Samtals 1.984 kg
1.6.24 Hrói SH 40 Grásleppunet
Grásleppa 302 kg
Samtals 302 kg

Skoða allar landanir »