Ernir seldur til Ómans eftir tveggja ára legu

Uppsjávarskipið Ernir hefur legið í Kópavogshöfn í rúmlega tvö ár …
Uppsjávarskipið Ernir hefur legið í Kópavogshöfn í rúmlega tvö ár en virðist nú vera selt til Ómans. mbl.is/Gunnlaugur

Uppsjávarskipið Ernir sem hefur legið við bryggju í Kópavogshöfn undanfarin rúm tvö ár virðist loks hafa fengið nýja eigendur samkvæmt upplýsingum 200 mílna. Málað hefur verið yfir nafn skipsins og þar stendur nú Al Nasr og það merkt PSQ en það er skammstöfun Sultan Qaboos-hafnar sem er stærsta höfnin í Múskat, höfuðborg Ómans.

Að því sem 200 mílur komast næst hefur skipið verið í eigu félags Jakobs Valgeirs Flosasonar og til sölu um nokkurt skeið.

Ernir (nú Al Nasr) hefur verið frá árinu 2020 skráð í Belís þar til nú. Skipið á sér þó langa útgerðarsögu meðal annars á Íslandi, eins og 200 mílur sögðu frá árið 2022.

Í umfjölluninni frá febrúar 2022 segir:

„Ernir var smíðaður 1987 í Bergen í Noregi fyrir norska útgerð. Þá var skipið 58,9 metra að lengd, 12,6 metra að breidd og 1.900 brúttótonn og bar um langt skeið nafnið Hardhaus.

Árið 2004 festi Þorbjörn Fiskanes hf. (síðar Þorbjörn hf.) í Grindavík kaup á skipinu í gegnum dótturfélag sitt Ólaf hf. og fékk skipið þá nafnið Grindvíkingur GK. Ekki gerðu Grindvíkingar skipið út lengi þar sem aflaheimildir reyndust ekki vera nægar til þess að standa undir rekstri skipsins.

Rétt einum og hálfum mánuði eftir að Þorbjörn Fiskanes hf. keypti skipið var það selt Ísfélagi Vestmannaeyja hf. með tilheyrandi aflaheimildum í íslenskri sumargotssíld, norsk-íslenskri síld og loðnu. Fékk þá skipið nafnið Guðmundur VE.“

Ernir heitir nú Al Nasr og er skipið skráð í …
Ernir heitir nú Al Nasr og er skipið skráð í Óman. Ljósmynd/Stefán O. Stefánsson

Til Vestmannaeyja og Grænlands

„Eftir aðeins tveggja ára þjónustu fyrir Ísfélagið var Guðmundur VE í mars 2006 sendur til skipasmíðastöðvar í Póllandi þar sem átti að framkvæma umtalsverðar breytingar. Þar kviknaði eldur í frystilest skipsins og urðu töluverðar skemmdir á vinnsludekkinu.

Eftir 10 mánaða veru í Póllandi snéri Guðmundur aftur til Íslands en þá hafði skipið verið lengt um 12,5 metra og með nýjan búnað um borð.

Október 2013 var Guðmundur seldur til Grænlands þar sem Royal Greenland gerði skipið út en undir nafninu Tasiilaq. Tasiilaq átti eftir að koma oft til Íslands á þeim tæpu sjö árum sem skipið sigldi undir grænlenskum fána.

Þann 15. júní 2020 seldi hins vegar Royal Greenland skipið og fékk það nafnið Ernir og varð skráð í Belís. Royal Greenland festi kaup á Christian í Grótinum frá Færeyjum sem leysti Tasiilaq (Erni) af hólmi en færeyska skipið fékk við það nafn fyrirrennara síns, Tasiilaq.“

Ernir hefur nú, sem fyrr segir, fengið nafnið Al Nasr og mun vera gert út frá Óman.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.7.24 548,75 kr/kg
Þorskur, slægður 26.7.24 540,89 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.7.24 373,46 kr/kg
Ýsa, slægð 26.7.24 153,60 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.7.24 161,40 kr/kg
Ufsi, slægður 26.7.24 208,59 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 26.7.24 543,91 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.7.24 Hafrafell SU 65 Lína
Steinbítur 958 kg
Þorskur 196 kg
Keila 38 kg
Skarkoli 26 kg
Samtals 1.218 kg
26.7.24 Arnþór EA 37 Handfæri
Þorskur 782 kg
Ufsi 133 kg
Samtals 915 kg
26.7.24 Þorleifur EA 88 Þorskfisknet
Þorskur 756 kg
Ufsi 482 kg
Samtals 1.238 kg
26.7.24 Gísli EA 221 Handfæri
Þorskur 2.199 kg
Ufsi 26 kg
Samtals 2.225 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.7.24 548,75 kr/kg
Þorskur, slægður 26.7.24 540,89 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.7.24 373,46 kr/kg
Ýsa, slægð 26.7.24 153,60 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.7.24 161,40 kr/kg
Ufsi, slægður 26.7.24 208,59 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 26.7.24 543,91 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.7.24 Hafrafell SU 65 Lína
Steinbítur 958 kg
Þorskur 196 kg
Keila 38 kg
Skarkoli 26 kg
Samtals 1.218 kg
26.7.24 Arnþór EA 37 Handfæri
Þorskur 782 kg
Ufsi 133 kg
Samtals 915 kg
26.7.24 Þorleifur EA 88 Þorskfisknet
Þorskur 756 kg
Ufsi 482 kg
Samtals 1.238 kg
26.7.24 Gísli EA 221 Handfæri
Þorskur 2.199 kg
Ufsi 26 kg
Samtals 2.225 kg

Skoða allar landanir »