Kom til Húsavíkur í togi

Varðskipið Freyja var komin með flutningsaskipið Treville í tog síðdegis …
Varðskipið Freyja var komin með flutningsaskipið Treville í tog síðdegis í gær. Ljósmynd/Landhelgisgæslan: Raggi Hansa

Varðskipið Freyja kom til Húsavíkur seint í gærkvöldi með hollenska flutningaskipið Treville í togi og lagði það við bryggju um klukkan hálf tólf. Ekki liggur fyrir hve margir voru um borð í flutningaskipinu eða hvað olli því að það varð vélarvana.

Treville var um fjórar sjómílur út af Rifstanga, sem er um 15 kílómetra norðvestur af Raufarhöfn, á leið frá Akureyri til Rostock í Þýskalandi þegar það varð vélarvana. Hafði áhöfnin samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar á þriðja tímanum aðfaranótt gærdagsins og greindi frá því að skipið væri vélarvana vegna bilunar og að það ræki í átt að landi.

„Töluvert viðbragð var vegna atviksins. Þyrlusveit og sjóbjörgunarsveitir á vegum Slysavarnafélagsins Landsbjargar voru kallaðar út ásamt áhöfninni á varðskipinu Freyju. Þá var nálægt togskip einnig beðið um að halda á staðinn,“ segir í tilkynningu á Facebook-síðu Landhelgisgæslunnar.

Virðist hafa verið nokkuð í að viðbragðsaðilar kæmust á staðinn enda löng leið að skipinu. Var ákveðið að stöðva rek skipsins með því að láta akkeri Trevillle falla og þegar það tókst var aðstoð björgunarsveita og þyrlusveitar afturkölluð.

Freyja var mætt á vettvang um klukkan tvö síðdegis í gær og komin með skipið í tog rúmlega klukkan fjögur. Í tilkynningunni segir: „hæglætisveður var á staðnum og sjólag um 2-3 metrar.“

Treville kom til Húsavíkur seint í gærkvöldi.
Treville kom til Húsavíkur seint í gærkvöldi. mbl.is/Hafþór
Ljósmynd/Landhelgisgæslan: Raggi Hansa
Ljósmynd/Landhelgisgæslan: Raggi Hansa
Mikið blíðviðri var út af Rifsnesi í gær.
Mikið blíðviðri var út af Rifsnesi í gær. Ljósmynd/Landhelgisgæslan: Raggi Hansa
mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.7.24 548,75 kr/kg
Þorskur, slægður 26.7.24 540,89 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.7.24 373,46 kr/kg
Ýsa, slægð 26.7.24 153,60 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.7.24 161,40 kr/kg
Ufsi, slægður 26.7.24 208,59 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 26.7.24 543,91 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.7.24 Hafrafell SU 65 Lína
Steinbítur 958 kg
Þorskur 196 kg
Keila 38 kg
Skarkoli 26 kg
Samtals 1.218 kg
26.7.24 Arnþór EA 37 Handfæri
Þorskur 782 kg
Ufsi 133 kg
Samtals 915 kg
26.7.24 Þorleifur EA 88 Þorskfisknet
Þorskur 756 kg
Ufsi 482 kg
Samtals 1.238 kg
26.7.24 Gísli EA 221 Handfæri
Þorskur 2.199 kg
Ufsi 26 kg
Samtals 2.225 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.7.24 548,75 kr/kg
Þorskur, slægður 26.7.24 540,89 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.7.24 373,46 kr/kg
Ýsa, slægð 26.7.24 153,60 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.7.24 161,40 kr/kg
Ufsi, slægður 26.7.24 208,59 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 26.7.24 543,91 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.7.24 Hafrafell SU 65 Lína
Steinbítur 958 kg
Þorskur 196 kg
Keila 38 kg
Skarkoli 26 kg
Samtals 1.218 kg
26.7.24 Arnþór EA 37 Handfæri
Þorskur 782 kg
Ufsi 133 kg
Samtals 915 kg
26.7.24 Þorleifur EA 88 Þorskfisknet
Þorskur 756 kg
Ufsi 482 kg
Samtals 1.238 kg
26.7.24 Gísli EA 221 Handfæri
Þorskur 2.199 kg
Ufsi 26 kg
Samtals 2.225 kg

Skoða allar landanir »