Óvenju mörg útköll á sjó

Þyrlusveitin var kölluð út á hæsta for­gangi á þriðja tímanum …
Þyrlusveitin var kölluð út á hæsta for­gangi á þriðja tímanum á fimmtudag þegar strandveiðibáturinn Hadda HF 52 hvolfdi. mbl.is/Árni Sæberg

Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var í gærkvöldi kölluð út í fjórða sinn á tveimur dögum vegna atvika úti á sjó. Um er að ræða óvenju mörg útköll að sögn Ásgeirs Erlendssonar, upplýsingafulltrúa Gæslunnar.

Þyrlusveitin var kölluð út á hæsta for­gangi á þriðja tímanum á fimmtudag þegar strandveiðibátnum Höddu HF 52 hvolfdi.

Sveitin var svo kölluð út tvisvar sinnum seinna um daginn vegna veikinda um borð í íslenskum fiskiskipum.

Maður sóttur 40 sjómílum vestan Látrabjargs

Þyrlusveitin var svo kölluð út á tíunda tímanum í gærkvöldi vegna veikinda um borð í íslensku fiskiskipi sem var á veiðum 40 sjómílum vestur af Látrabjargi.

Þyrlan flaug frá Reykjavík og var komin að skipinu um miðnætti og maðurinn var hífður um borð.

Í kjölfarið var hann fluttur á Reykjavíkurflugvöll þar sem sjúkrabíll beið eftir manninum og flutti hann á Landspítalann en hann var kominn þangað um eitt leytið.

„Þannig að þyrlusveitin hefur haft í nægu að snúast þegar kemur að útköllum úti á sjó. Þau eru óvenju mörg síðustu þrjá daga,“ segir Ásgeir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.7.24 548,75 kr/kg
Þorskur, slægður 26.7.24 540,89 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.7.24 373,46 kr/kg
Ýsa, slægð 26.7.24 153,60 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.7.24 161,40 kr/kg
Ufsi, slægður 26.7.24 208,59 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 26.7.24 543,91 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.7.24 Hafrafell SU 65 Lína
Steinbítur 958 kg
Þorskur 196 kg
Keila 38 kg
Skarkoli 26 kg
Samtals 1.218 kg
26.7.24 Arnþór EA 37 Handfæri
Þorskur 782 kg
Ufsi 133 kg
Samtals 915 kg
26.7.24 Þorleifur EA 88 Þorskfisknet
Þorskur 756 kg
Ufsi 482 kg
Samtals 1.238 kg
26.7.24 Gísli EA 221 Handfæri
Þorskur 2.199 kg
Ufsi 26 kg
Samtals 2.225 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.7.24 548,75 kr/kg
Þorskur, slægður 26.7.24 540,89 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.7.24 373,46 kr/kg
Ýsa, slægð 26.7.24 153,60 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.7.24 161,40 kr/kg
Ufsi, slægður 26.7.24 208,59 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 26.7.24 543,91 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.7.24 Hafrafell SU 65 Lína
Steinbítur 958 kg
Þorskur 196 kg
Keila 38 kg
Skarkoli 26 kg
Samtals 1.218 kg
26.7.24 Arnþór EA 37 Handfæri
Þorskur 782 kg
Ufsi 133 kg
Samtals 915 kg
26.7.24 Þorleifur EA 88 Þorskfisknet
Þorskur 756 kg
Ufsi 482 kg
Samtals 1.238 kg
26.7.24 Gísli EA 221 Handfæri
Þorskur 2.199 kg
Ufsi 26 kg
Samtals 2.225 kg

Skoða allar landanir »