Lítið þokast í samningaviðræðum

Enn hefur ekki tekist að semja um skiptingu norsk-íslensku síldarinnar.
Enn hefur ekki tekist að semja um skiptingu norsk-íslensku síldarinnar. Ljósmynd/Síldarvinnslan: Þorgeir Baldursson

„Í síðustu viku var fundur um skiptingu makríls og í næstu viku verða fundir um kolmunna og síld í Osló. Lítið hefur þokast í samningaviðræðum í öllum stofnum undanfarna mánuði,“ upplýsir matvælaráðuneytið í svari við fyrirspurn 200 mílna um gang samningaviðræðna strandríkja um skiptingu hlutdeilda í makríl, kolmunna og norsk-íslenskri síld.

Árangursleysið eru líklega nokkur vonbrigði fyrir fulltrúa Íslands en uppi voru háleit markmið um að ná samkomulagi milli Íslands, Grænlands, Færeyja, Bretlands, Noregs, Rússlands og Evrópusambandsins um skiptingu hlutdeilda ríkjanna í norsk-íslenskri síld á meðan viðræðurnar um tegundina (og kolmunna) voru leiddar af Íslandi.

Fyrst var stefnt að því að lenda samningum fyrir síðastliðin áramót en eftir að það tókst ekki var reynt að lenda samningum áður en Ísland lét af formennsku í mars.

„Ísland hefur sett einhliða aflamark undanfarin ár líkt og önnur ríki og þar sem ekki eru samningar um skiptingu aflamarks er ekki fyrirhuguð breyting þar á. Ísland, líkt og Noregur lækkaði aflamark í síld nú í vetur vegna bágborinnar stöðu stofnsins. Þannig setti Ísland einhliða aflamark sem 15,6% af ráðlögðum afla í stað 16.5% líkt og áður var,“ segir í svari matvælaráðuneytisins.

Deilurnar virðast misharðar eftir tegundum og hafa Norðmenn og Færeyingar undanfarið aukið úthlutun makrílkvóta til sinna skipa. Voru Norðmenn á síðasta ári sakaðir um að viljandi auka makrílkvóta sinn bara í þeim tilgangi að geta nýtt hann til að greiða Bretum fyrir aðgengi að breskri lögsögu þar sem norskum skipum var heimilt að veiða allt að 60% af makrílkvóta sínum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.7.24 548,75 kr/kg
Þorskur, slægður 26.7.24 540,89 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.7.24 373,46 kr/kg
Ýsa, slægð 26.7.24 153,60 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.7.24 161,40 kr/kg
Ufsi, slægður 26.7.24 208,59 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 26.7.24 543,91 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.7.24 Hafrafell SU 65 Lína
Steinbítur 958 kg
Þorskur 196 kg
Keila 38 kg
Skarkoli 26 kg
Samtals 1.218 kg
26.7.24 Arnþór EA 37 Handfæri
Þorskur 782 kg
Ufsi 133 kg
Samtals 915 kg
26.7.24 Þorleifur EA 88 Þorskfisknet
Þorskur 756 kg
Ufsi 482 kg
Samtals 1.238 kg
26.7.24 Gísli EA 221 Handfæri
Þorskur 2.199 kg
Ufsi 26 kg
Samtals 2.225 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.7.24 548,75 kr/kg
Þorskur, slægður 26.7.24 540,89 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.7.24 373,46 kr/kg
Ýsa, slægð 26.7.24 153,60 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.7.24 161,40 kr/kg
Ufsi, slægður 26.7.24 208,59 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 26.7.24 543,91 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.7.24 Hafrafell SU 65 Lína
Steinbítur 958 kg
Þorskur 196 kg
Keila 38 kg
Skarkoli 26 kg
Samtals 1.218 kg
26.7.24 Arnþór EA 37 Handfæri
Þorskur 782 kg
Ufsi 133 kg
Samtals 915 kg
26.7.24 Þorleifur EA 88 Þorskfisknet
Þorskur 756 kg
Ufsi 482 kg
Samtals 1.238 kg
26.7.24 Gísli EA 221 Handfæri
Þorskur 2.199 kg
Ufsi 26 kg
Samtals 2.225 kg

Skoða allar landanir »