Of fáklædd fyrir Disney World

Jordyn Graime fékk Disney-stuttermabol eftir að hún mætti í þessum …
Jordyn Graime fékk Disney-stuttermabol eftir að hún mætti í þessum bol í Disney World. Samsett mynd

Jordyn Graime, ung kona frá New Jersey í Bandaríkjunum, nældi sér í frían stuttermabol í Disney World í Flórída á dögunum þegar hún mætti of fáklædd í garðinn að mati starfsmanna. Graime sagði frá á TikTok, en toppur hennar þótti of efnislítill. 

Graime sýndi bolinn sem hún mætti í í garðinn, en sá var blár og baklaus, bundinn saman með böndum á bakinu og hálsinum. Í móttökunni í Epcot-þemagarðsins var henni tjáð að bolurinn bryti í bága við reglur um klæðnað gesta. 

Var henni fenginn frímiði til að ná sér í stuttermabol frá Disney svo hún gæti hulið sig. 

Yfir fjórar milljónir hafa horft á myndbandið og 200 þúsund lækað það. 

@jordyngraime Disney doesn’t like backs I guess…. #epcot #disneyworld #disney #dresscode #fyp #foryoupage @jessiedipasquale ♬ Castaways - The Backyardigans
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert