Katla frumsýnd 17. júní

Mynd úr þáttaröðinni um Kötlu.
Mynd úr þáttaröðinni um Kötlu. Photo Credits: Lilja Jónsdóttir/ Netflix

Netflix birtir í dag stiklu úr Kötlu, fyrstu íslensku þáttaröðinni, sem framleidd er fyrir streymisveituna. Þættirnir eru úr smiðju leikstjórans Baltasars Kormáks og verða teknir til sýninga um allan heim 17. júní.

Í fréttatilkynningu kemur fram að þegar Katla hefur gosið samfellt í eitt ár er Gríma enn þá að leita að systur sinni sem hvarf daginn sem eldfjallið hóf að gjósa. „Þegar von hennar um að finna lík systur sinnar fer dvínandi fara íbúar á svæðinu að fá heimsóknir frá óvæntum gestum. Kannski leynist eitthvað undir jöklinum sem enginn gat séð fyrir.“

Með hlutverk fara Guðrún Ýr Eyfjörð, Íris Tanja Flygenring, Ingvar Sigurðsson, Þorsteinn Bachmann, Sólveig Arnarsdóttir, Guðrún Gísladóttir, Baltasar Breki, Björn Thors, Haraldur Ari Stefánsson, Birgitta Birgisdóttir, Helga Braga Jónsdóttir, Björn Ingi Hilmarsson, Aldís Amah Hamilton, Hlynur Atli Harðarson og Svíarnir Aliette Opheim og Valter Skarsgård.

Leikstjórar eru Baltasar Kormákur, Börkur Sigþórsson og Þóra Hilmarsdóttir. Handritshöfundar eru Baltasar Kormákur, Sigurjón Kjartansson, Davíð Már Stefánsson og Lilja Sigurðardóttir.

Hér má sjá meira um þættina  

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson