Úkraínu spáð sigri í Eurovison

Úkraínu er nú spáð sigri í Eurovision söngvakeppninni. Ruslana sigraði …
Úkraínu er nú spáð sigri í Eurovision söngvakeppninni. Ruslana sigraði Eurovision fyrir hönd Úkraínu árið 2004.

Úkraínu er nú spáð sigri í Eurovision söngvakeppninni sem fer fram í Tórínó á Ítalíu í maí. Landið hefur rokið upp í veðbönkum síðan Rússland hóf innrás sína. 

Úkraína er eitt þeirra fárra landa sem nú þegar hefur valið keppanda sinn en það er Kalush Orchestra sem mun fara í keppnina og flytja lagið Stefania. 

Rússland fær ekki að taka þátt í keppninni vegna innrásarinnar en frá því greindi Samband evrópskra sjónvarpsstöðva (EBU) á föstudag.

Ítalía, sem heldur keppnina í ár, er spáð öðru sæti í keppninni en Mahmod & Blanco munu keppa fyrir hönd Ítalíu með lagið Brividi. Svíþjóð er spáð þriðja sæti en landið hefur ekki enn valið sér keppanda. Ísland situr í 22. sæti eins og er.

Úkraína hefur átt góðu gengi að fagna í Eurovision síðan landið tók fyrst árið 2003. Landið hefur unnið keppnina tvisvar sinnum, árin 2004 og 2016. Tvisvar sinnum hefur Úkraína lent í öðru sæti og einu sinni í því þriðja. Á síðasta ári lenti sveitin Go_A í fimmta sæti, en sveitin er einmitt væntanleg til landsins á úrslitakvöld Söngvakeppni sjónvarpsins hinn 12. mars.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson