Íslensku hljóðbókaverðlaunin veitt

Helga Elínborg Jónsdóttir hlaut heiðursverðlaun kvöldsins.
Helga Elínborg Jónsdóttir hlaut heiðursverðlaun kvöldsins. Ljósmynd/Árni Rúnarsson

Ís­lensku hljóð­bóka­verð­launin, Stor­ytel Awards, voru veitt við há­tíð­lega at­höfn í Norður­ljósum í Hörpu í gærkvöld. Um er að ræða ár­legan við­burð þar sem hljóð­bóka­unn­endur; út­gef­endur, höfundar og lesarar fagna saman út­gáfu vönduðustu hljóð­bóka síðasta árs.

Verð­laun voru veitt í sex flokkum auk sérstakra heiðursverðlauna sem leikkonan Helga Elínborg Jónsdóttir hlaut fyrir ómetanlegt framlag til íslenskrar talsetningar og hljóðbóka. „Helga er ein ástsælasta leikkona þjóðarinnar og hefur undanfarin ár lesið fjölda íslenskra hljóðbóka. Nú síðast las hún bókina Sálarhlekkir sem er ein vinsælasta bók ársins hjá Storytel,“ segir í tilkynningu. 

Verðlaunahafar gærkvöldsins voru eftirtaldir:

Besta barna- og ungmennabókin

Litla hafmeyjan 

Höfundur: Anna Bergljót Thorarensen 

Lestur: Leikhópurinn Lotta

Litla hafmeyjan var valin besta barna- og ungmennabókin.
Litla hafmeyjan var valin besta barna- og ungmennabókin.

„Litla hafmeyjan er einstaklega skemmtileg og vel gerð hljóðbók. Upphaflega var Litla hafmeyjan söngleikur sem Leikhópurinn Lotta sýndi um land allt en aðlagaði svo einstaklega vel að hljóðbókaforminu. Dómnefndin var sammála að leikgleðin hafi ráðið ríkjum þar sem heildarmyndin var virkilega sterk og allir leikarar fóru á kostum í hlutverkum sínum og ekki skemmdi fyrir frábær boðskapur varðandi náttúruvernd. Einnig var skemmtilega snúið upp á söguna um Litlu hafmeyjuna og sjá má frábæra birtingarmynd ástarinnar sem blómstar að lokum á milli konungssonarins Hlina og hafmeyjunnar Sævars.,“ segir í um­sögn dóm­nefndar.

Besta glæpasagan

Þú sérð mig ekki

Höfundur: Eva Björg Ægisdóttir

Þú sérð mig ekki var valin besta glæpasagan.
Þú sérð mig ekki var valin besta glæpasagan.

Lestur:Guðmundur Ingi Þorvaldsson, Haraldur Ari Stefánsson, María Dögg Nelsson, Sigríður Eyrún Friðriksdóttir, Sigríður Láretta Jónsdóttir og Þórey Birgisdóttir. 

„Þú sérð mig ekki eftir Evu Björgu Ægisdóttur fléttar saman mikla fjölskyldusögu við spennandi glæpasögu sem á sér stað á lúxushóteli á Snæfellsnesi. En þegar hin áhrifamikla Snæbergsfjölskylda kemur öll saman undir sama þaki er voðinn vís og gömul fjölskylduleyndarmál leita upp á yfirborðið. Bókin er metnaðarfullt verkefni og vel uppbyggð. Enn sýnir Eva Björg hvers vegna hún er einn fremsti glæpasagnahöfundur vorrar þjóðar. Góð bók verður enn betri í hljóðbókarlestri færs lesendahóps, en hann skipa : Sigríður Láretta Jónsdóttir, Sigríður Eyrún Friðriksdóttir, Þórey Birgisdóttir, Haraldur Ari Stefánsson, Guðmundur Ingi Þorvaldsson og María Dögg Nelson. Hver og einn lesari gæðir persónur bókarinnar lífi, eykur áhrif söguþráðarins til muna og hjálpar hlustandanum að greina á milli persónanna. Þú sérð mig ekki er kraftmikil glæpasaga sem lifnar við á nýjan hátt í eyrum hlustanda sem vill ekki slökkva á tækinu fyrr en síðasti taktur hljóðbókarinnar slær,“ segir í um­sögn dóm­nefndar.

Besta skáldagan

Konan hans Sverris 

Höfundur: Valgerður Ólafsdóttir

Lestur: Margrét Örnólfsdóttir

Konan hans Sverris var valin besta skáldsagan.
Konan hans Sverris var valin besta skáldsagan.

„Í Konunni hans Sverris fáum við að heyra hispurslausa frásögn konu sem hefur loks fundið frelsið til að segja sögu sína á eigin forsendum. Hildur, sögukona bókarinnar, lýsir á blákaldan máta veruleika kvenna sem eru fastar árum eða áratugum saman í samböndum sem ógna lífi þeirra og heilsu. Hún hlífir hvorki sjálfri sér né geranda sínum þegar hún tekst á við sjálfsblekkinguna og réttlætingarnar sem fólk leitar í til að lifa af í slíkum aðstæðum. Saga Hildar er um margt svo kunnugleg. Lesandinn fær á tilfinninguna að andlega og líkamlega ofbeldið sem hún lýsir gæti allt eins átt sér stað í næsta húsi eða innan eigin fjölskyldu. Lestur Margrétar Örnólfsdóttur gæðir rödd Hildar bæði þroska og visku konu sem horfir til baka og syrgir glataðan tíma en finnur jafnframt fyrir styrk sínum í því að hafa lagt ofbeldið að baki og skapað öruggt skjól fyrir sjálfa sig og börnin sín.,“ segir í um­sögn dóm­nefndar.

Besta ósk­áldaða efnið

Veran í moldinni

Höfundur: Lára Kristín Pedersen

Lestur: Þuríður Blær Jóhanns­dóttir 

Veran í moldinni var vali besta óskáldaða efnið.
Veran í moldinni var vali besta óskáldaða efnið.

 „Virkilega voguð og skörp frásögn höfundar á mjög áhugaverðu efni sem fáir þekkja en margir geta tengt við. Fíknin birtist okkur í mörgum myndum. Lára Kristín segir frá, opnar sig og ritar sína sögu um baráttu við matarfíkn af einlægni og heiðarleika. Hún berskjaldar sig fyrir hlustandanum og hikar hvergi við að galopna hjarta sitt og horfast í augu við þá erfiðleika og það mótlæti sem þessi erfiði sjúkdòmur hefur að geyma. Hún er sjálfsgagnrýnin og dregur ekkert undan í frásögn sinni.

Skýr lestur og áheyrileg rödd Þuríðar Blævar bætir við söguna með sinni næmu nálgun og góðri tilfinningu fyrir efninu. Frásögnin er fræðandi og aðgengileg og hentar hljóðbókarforminu vel.,“ segir í um­sögn dóm­nefndar.

Besti ljúflesturinn

Litla bakaríið við Strandgötu 

Höfundur: Jenny Colgan

Lestur: Esther Talía Casey

Litla bakaríið við Strandgötu var valin besti ljúflesturinn.
Litla bakaríið við Strandgötu var valin besti ljúflesturinn.

 „Það sem fær Litla bakaríið við Strandgötu til að bera af í sínum flokki er natnin sem Jenny Colgan sýnir við að draga fram vettvang sögunnar – smáþorpið Mount Polbearne við strendur Cornwall-sýslu. Þangað flýr aðalsöguhetjan Polly í leit að andrými eftir ófarir í bæði atvinnu- og ástamálum. Á þessum heillandi útnára, sem er einungis aðgengilegur frá meginlandinu þegar sjávarföll leyfa, kynnist hún ýmsum kynlegum kvistum. Lesandinn fylgist með því hvernig Polly aðlagar sig smátt og smátt að lífinu í þessu rólega þorpi og skapar sér sinn sess á meðal þorpsbúa. Í meðhöndlun Colgan breytist þorpið og nærumhverfi þess í töfrandi veröld sem er freistandi að gleyma sér í um stund og hikar hún ekki við að nostra við jafnvel sínar smæstu persónur og gæða þær lífi. Það er því einkar aðdáunarvert hvernig þægilegur og áreynslulaus lestur Estherar Talíu Casey nær að halda utan um þetta stóra persónugallerí,“ segir í um­sögn dóm­nefndar.

Besta hljóðserían

Hundrað óhöpp Hemingways 

Höfundur: Lilja Sigurðardóttur

Lestur: Lilja Sigurðardóttir, Örn Árnason og fleiri leikraddir.

Hundrað óhöpp Hemingways var valin besta hljóðserían.
Hundrað óhöpp Hemingways var valin besta hljóðserían.

„Lilju Sigurðardóttur tekst einstaklega vel að draga upp mynd af lífshlaupi nóbelskáldsins Ernest Hemingway og nýtir til þess alla bestu möguleika hlaðvarpsmiðilsins. Persónulegur áhugi og ástríða Lilju fyrir efninu skín vel í gegn, þá helst í skálduðum samtölum sem binda listilega saman framvinduna. Hljóðupptökur eru vandaðar, hljóðvinnslan og hljóðblöndunin er til fyrirmyndar þannig að þættirnir mynda mjög sterka og áheyrilega heild,“ segir í umsögn dómnefndar. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson