Getur skipt máli á hættutímum

Varnarmál Íslands | 15. júní 2023

Getur skipt máli á hættutímum

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra segir að samstarf á borð við sameiginlegu viðbragðssveitina sé mikilvægur liður í að tryggja skjót viðbrögð ef öryggi og vörnum Íslendinga verði ógnað.

Getur skipt máli á hættutímum

Varnarmál Íslands | 15. júní 2023

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra.
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra segir að samstarf á borð við sameiginlegu viðbragðssveitina sé mikilvægur liður í að tryggja skjót viðbrögð ef öryggi og vörnum Íslendinga verði ógnað.

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra segir að samstarf á borð við sameiginlegu viðbragðssveitina sé mikilvægur liður í að tryggja skjót viðbrögð ef öryggi og vörnum Íslendinga verði ógnað.

Sam­eig­in­lega viðbragðssveit­in, eða JEF (e. Jo­int Exped­iti­on­ary Force), er með fær­an­lega her­stjórn­ar­miðstöð á öryggissvæðinu í Reykja­nes­bæ í æf­inga­skyni. 250 manns taka þátt í verk­efn­inu, sem stendur yfir út júnímánuð. 

Gefur góð skilaboð

„Þátttaka okkar í JEF er mikilvæg viðbót við þá heildarhugsun í öryggis- og varnarmálum sem hefur verið að þróast í breyttri heimsmynd. Það skiptir máli fyrir Ísland að taka virkan þátt í samstarfi sem við erum aðilar að. Þetta gefur góð skilaboð og felur í sér raunverulegan undirbúning sem getur skipt máli fyrir varnir Íslands á hættutímum," segir Þórdís Kolbrún í samtali við mbl.is.

Mynd innan úr herstjórnarmiðstöð JEF á Íslandi.
Mynd innan úr herstjórnarmiðstöð JEF á Íslandi. mbl.is/Arnþór Birkisson

Grunnstoðirnar Bandaríkin og NATO

Hún segir þó að tvíhliða varnarsamningur Íslands við Bandaríkin og aðild að Atlantshafsbandalaginu séu grunnstoðirnar í að tryggja öryggi Íslands. 

„Stoðirnar okkar í öryggis- og varnarmálum eru auðvitað tryggðar í gegnum tvíhliða varnarsamning við Bandaríkin og aðild okkar að NATO. Í því felst okkar helsti fælingarmáttur og tryggasta varnargetan. Öll aðildarríki JEF, að undanskildu Svíþjóð í bili, eru í NATO. Þessar þjóðir standa allar mjög nærri okkur í öllum skilningi,“ greinir hún frá. 

Hershöfðinginn Jim Morris, sem er yfirmaður sameiginlegu viðbragðssveitarinnar, tók í sama streng í samtali við mbl.is fyrir viku. „Við erum ekki með her og mun­um aldrei koma í stað NATO. Hlut­verk okk­ar er í raun að leysa ör­ygg­is­ógn­ir áður en til stríðs kem­ur.“

Þórdís Kolbrún bætir við um sameinuðu viðbragðssveitina: „Svæðisbundið samstarf á borð við JEF er vettvangur fyrir skipulag og samhæfingu varðandi ýmsar aðgerðir, þar á meðal skjót viðbrögð ef eitthvað myndi gerast í öryggis- og varnarmálum.“

mbl.is