Enginn stuðningur úr lofti án hávaða

Varnarmál Íslands | 3. ágúst 2023

Enginn stuðningur úr lofti án hávaða

Orrustuþotum fylgir ávallt hávaði. Þetta sagði þýski ofurstinn Marco Brun­hofer á blaðamannafundi á öryggissvæðinu í Reykjanesbæ fyrr í dag. Hávaði sem hann þekkir heima fyrir sem hljóð frelsis. Ríflega 30 blaðamenn frá Þýskalandi mættu á fundinn.

Enginn stuðningur úr lofti án hávaða

Varnarmál Íslands | 3. ágúst 2023

Orrustuþotum fylgir ávallt hávaði. Þetta sagði þýski ofurstinn Marco Brun­hofer á blaðamannafundi á öryggissvæðinu í Reykjanesbæ fyrr í dag. Hávaði sem hann þekkir heima fyrir sem hljóð frelsis. Ríflega 30 blaðamenn frá Þýskalandi mættu á fundinn.

Orrustuþotum fylgir ávallt hávaði. Þetta sagði þýski ofurstinn Marco Brun­hofer á blaðamannafundi á öryggissvæðinu í Reykjanesbæ fyrr í dag. Hávaði sem hann þekkir heima fyrir sem hljóð frelsis. Ríflega 30 blaðamenn frá Þýskalandi mættu á fundinn.

„Ef Ísland þarf á stuðningi að halda þá höfum við nú sýnt fram á það að við getum orðið ykkur að liði á stuttum tíma. Ég tek það þó fram að það verður enginn stuðningur úr lofti án hávaða. Vélarnar eru ekki rafknúnar. Þannig þessu fylgir hávaði, en á okkar tungumáli þá þekkjum við þetta sem hljóð frelsis (e. Sound of freedom),“ sagði Brunhofer meðal annars á blaðamannafundinum en bætti við:

„Ég tel hávaðann vera vel þess virði því í staðinn þá tryggjum við öryggi og frelsi.“

Ríflega 30 blaðamenn frá 14 þýskum fjölmiðlum mættu á blaðamannfundinn sem mbl.is sótti og komu þeir til landsins sérstaklega fyrir þennan fund. Komu þeir til landsins á stærðarinnar flugvél þýska flughersins klukkan 11 í morgun og voru farnir aftur til Þýskalands klukkan 15.

Marco Brunhofer, ofursti hjá þýska flughernum.
Marco Brunhofer, ofursti hjá þýska flughernum. mbl.is/Eyþór Árnason

Flugherinn tilbúinn til taks

„Eins og þið hafið séð á síðustu árum þá er þýski flugherinn orðinn sveigjanlegri og hefur verið beitt meira um heiminn þar sem þörf er á. Við höfum hins vegar ekki farið á norðurskautssvæðið og það er þess vegna sem við erum á Íslandi,“ sagði ofurstinn og bætti við að með þessari æfingu hafi þeir nú þegar sýnt fram á hversu skjótir þeir geta verið í útköll.

Flugherinn tók með sér 25 tonn af búnaði, sem er aðeins 1/​6 af því sem þeir mynd­u venjulega nýta fyr­ir æf­ing­ar sem þess­ar. Allt var þetta, ásamt 30 manna fylgdarliði, komið til Íslands á innan við fjórum dögum. 

„Skilaboðin eru þessi: Ef vandamál steðjar að einhver staðar í heiminum þá er flugherinn tilbúinn til taks,“ sagði Brunhofer.

Eurofighter Typhoon-orrustuþota tók á loft fyrr í dag.
Eurofighter Typhoon-orrustuþota tók á loft fyrr í dag. mbl.is/Eyþór Árnason

Íslendingar góðir gestgjafar

Hann þakkaði Íslendingum fyrir að vera góðir gestgjafar og skilaði Landhelgisgæslu Íslands sérstakar þakkir. Hann útskýrði að meginmarkmið verkefnisins væri að ná fram há­marks út­kalls­hraða með eins lít­illi fyr­ir­höfn og hægt sé. 

Þrír ungir flugmenn í flughernum eru með í för til að öðlast frekari reynslu en það er hefðbundið hjá flughernum að þjálfa unga flugmenn erlendis til að kynnast aðstæðum.

Í fylgdarliði þýska flughersins komu 30 manns til landsins.
Í fylgdarliði þýska flughersins komu 30 manns til landsins. mbl.is/Eyþór Árnason
Æfingin nefnist Röskur víkingur.
Æfingin nefnist Röskur víkingur. mbl.is/Eyþór Árnason

Æfing þýska flug­hers­ins hér á landi hófst 28. júlí og lýk­ur 10. ág­úst. Nefn­ist hún „Rapid Vik­ing“ (rösk­ur vík­ing­ur) og eru það her­menn úr röðum 73. flug­deild­ar flug­hers­ins, einnig þekkt und­ir nafn­inu Stein­hoff, sem sækja Ísland heim.

mbl.is