Skip úr fastaflota Atlantshafsbandalagsins (NATO) koma til hafnar í Reykjavík í dag. Með komu þeirra hingað lýkur kafbátaleitaræfingu bandalagsins á Norður-Atlantshafi, Dynamic Mongoose. Æfingin, sem haldin hefur verið árlega frá árinu 2012, hófst 24. apríl sl. og fór fram á hafsvæðinu á milli Íslands og Noregs. Vert er að benda forvitnum á að skip NATO leggjast að bryggju við Skarfabakka í Sundahöfn og Gömlu höfninni í Reykjavík.

Kafbátaæfing NATO hefur ekki farið fram hjá lesendum Morgunblaðsins og mbl.is, en fjallað hefur verið ítarlega um æfinguna í bæði máli og myndum. En blaðamanni og ljósmyndara Morgunblaðsins og mbl.is var um síðastliðna helgi boðið um borð í dönsku freigátuna HDMS Niels Juel (F363) þar sem hún lá við bryggju í Þórshöfn í Færeyjum. Þaðan var haldið út á haf og stefnan sett á æfingasvæði NATO þar sem æfðar voru kafbátavarnir.
Sjá má myndband frá æfingunni í frétt hér að neðan.
Frá Niels Juel gafst Morgunblaðsmönnum einstakt tækifæri til að fylgjast með dönskum, þýskum og færeyskum skipverjum og flugmönnum vinna náið saman að því erfiða verkefni sem kafbátaleit er. Stjórnendur æfingarinnar líkja kafbátaleit gjarnan við hópíþrótt þar sem ólík vopnakerfi vinna saman sem ein heild. Allt þarf að ganga sem skyldi ef finna á kafbáta undir yfirborðinu.
Ítarlega er fjallað um kafbátaleitaræfingu NATO á Norður-Atlantshafi í frétt hér að neðan.