Loftrýmisgæsla við Ísland hefst á ný

Varnarmál Íslands | 19. október 2023

Loftrýmisgæsla við Ísland hefst á ný

Von er á bandarískri flugsveit til landsins á morgun til að sinna loftrýmisgæslu Atlantshafsbandalagsins við Ísland. Flugsveitin kemur til landsins frá Þýskalandi, með fjórar F-16 herþotur og 120 liðsmenn.

Loftrýmisgæsla við Ísland hefst á ný

Varnarmál Íslands | 19. október 2023

F-16 þotur fljúga um loftin. Mynd úr safni.
F-16 þotur fljúga um loftin. Mynd úr safni. AFP

Von er á bandarískri flugsveit til landsins á morgun til að sinna loftrýmisgæslu Atlantshafsbandalagsins við Ísland. Flugsveitin kemur til landsins frá Þýskalandi, með fjórar F-16 herþotur og 120 liðsmenn.

Von er á bandarískri flugsveit til landsins á morgun til að sinna loftrýmisgæslu Atlantshafsbandalagsins við Ísland. Flugsveitin kemur til landsins frá Þýskalandi, með fjórar F-16 herþotur og 120 liðsmenn.

Þetta kemur fram á vef Stjórnarráðsins en sveitin tekur þátt í verkefninu ásamt starfsmönnum stjórnstöðva Atlantshafsbandalagsins í Udem í Þýskalandi og á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli.

Með fyrirvara um veður, er gert ráð fyrir aðflugsæfingum á varaflugvöllum á Akureyri og Egilsstöðum á tímabilinu 21. til 27. október.

Lýkur um miðjan nóvember

Framkvæmd verkefnisins verður með sama fyrirkomulagi og undanfarin ár og í samræmi við loftrýmisgæsluáætlun Atlantshafsbandalagsins fyrir Ísland.

Þá segir að flugsveitin kemur til með að hafa aðsetur á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli ásamt flugsveitum aðildarríkja Atlantshafsbandalagsins sem sinna kafbátaeftirliti úti fyrir ströndum Íslands.

Í umboði utanríkisráðuneytisins, annast varnarmálasvið Landhelgisgæslu Íslands framkvæmd verkefnisins í samstarfi við Isavia. Gert er ráð fyrir að loftrýmisgæslunni ljúki um miðjan nóvembermánuð.

mbl.is