Óskar þess að Svíar verði fljótt aðilar að NATO

Varnarmál Íslands | 20. júní 2023

Óskar þess að Svíar verði fljótt aðilar að NATO

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra og Pål Jonson, varnarmálaráðherra Svíþjóðar, settu fund norrænna varnarmálaráðherra á Hilton Nordica í dag. NORDEFCO er samstarfs- og samráðsvettvangur norrænna ríkja í varnarmálum.

Óskar þess að Svíar verði fljótt aðilar að NATO

Varnarmál Íslands | 20. júní 2023

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra og Pål Jonson (t.h), varnarmálaráðherra …
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra og Pål Jonson (t.h), varnarmálaráðherra Svíþjóðar

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra og Pål Jonson, varnarmálaráðherra Svíþjóðar, settu fund norrænna varnarmálaráðherra á Hilton Nordica í dag. NORDEFCO er samstarfs- og samráðsvettvangur norrænna ríkja í varnarmálum.

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra og Pål Jonson, varnarmálaráðherra Svíþjóðar, settu fund norrænna varnarmálaráðherra á Hilton Nordica í dag. NORDEFCO er samstarfs- og samráðsvettvangur norrænna ríkja í varnarmálum.

Áður en Þórdís Kolbrún gaf Pål Jonson orðið sagðist hún óska þess að Svíar yrðu fljótt aðilar að Atlantshafsbandalaginu. Hún sagði að framlag NORDEFCO væri framlag til öryggis á Norður-Atlantshafssvæðinu.

Áhersla á varnir í norðri

Svíar fara nú með formennsku í NORDEFCO. Jonson sagði að norrænu ríkin væru sameinuð í stuðningi sínum við Úkraínu. Hann sagði að áherslur formennsku Svía hafi snúist um forgang á varnir í norðurhluta Evrópu og að viðbúnaður þar gæti brugðist við öllum aðstæðum.

Hann minntist líka á mikilvægi norrænar framtíðarsýnar fyrir árið 2030, sem kveður á um að Norðurlöndin verði sjálfbærasta og samþættasta svæði heims.

Pål Jonson, varnarnálaráðherra Svíþjóðar, ávarpar fund NORDEFCO í Reykjavík.
Pål Jonson, varnarnálaráðherra Svíþjóðar, ávarpar fund NORDEFCO í Reykjavík. mbl.is/Eggert Jóhannesson
mbl.is