16 ára pílumeistari með 21 árs kærustu

Ást | 4. janúar 2024

16 ára pílumeistari með 21 árs kærustu

Hinn 16 ára gamli pílukastari Luke Littler hefur skotist upp á stjörnuhimininn á örskömmum tíma eftir ótrúlega frammistöðu á heimsmeistaramótinu í pílukasti í Bretlandi í gær. Littler hafnaði í öðru sæti á mótinu og er sá langyngsti frá upphafi til að fara í úrslit.

16 ára pílumeistari með 21 árs kærustu

Ást | 4. janúar 2024

Luke Littler er aðeins 16 ára gamall.
Luke Littler er aðeins 16 ára gamall. AFP

Hinn 16 ára gamli pílukastari Luke Littler hefur skotist upp á stjörnuhimininn á örskömmum tíma eftir ótrúlega frammistöðu á heimsmeistaramótinu í pílukasti í Bretlandi í gær. Littler hafnaði í öðru sæti á mótinu og er sá langyngsti frá upphafi til að fara í úrslit.

Hinn 16 ára gamli pílukastari Luke Littler hefur skotist upp á stjörnuhimininn á örskömmum tíma eftir ótrúlega frammistöðu á heimsmeistaramótinu í pílukasti í Bretlandi í gær. Littler hafnaði í öðru sæti á mótinu og er sá langyngsti frá upphafi til að fara í úrslit.

Það er þó ekki bara frammistaða hans í pílu sem hefur vakið athygli í fjölmiðlum heldur einnig aldursbilið á milli hans og kærustu hans, Eloise Milburn. Samkvæmt The Standard hafa Littler og Milburn verið saman í sex vikur, en þau kynntust í gegnum tölvuleikinn FIFA.

Milburn er fimm árum eldri en Littler sem þykir líklega ekki mikill aldursmunur nema fyrir þær sakir að Littler er aðeins 16 ára gamall og hafa gagnrýnisraddirnar því verið háværar, svo háværar að móðir hennar fann sig knúna til að stíga fram og verja samband þeirra.

„Henni er sama um peningana hans og frægð“

„Eloise hefur verið sökuð um alls kyns hluti. Það hefur verið sett inn mikið af hræðilegu efni á netið um dóttur mína og við Phil eiginmaður minn erum mjög reið yfir því,“ segir móðir hennar í samtali við Daily Mail og bætir við að dóttir hennar sé ekki með Littler vegna peninga og frægðar.

„Hún er ekki með honum af neinni af þessum ástæðum. Henni er sama um peningana hans og frægð, hún er með honum vegna þess að henni líkar vel við hann. Svo einfalt er það.“ 

mbl.is