Adele er gift kona

Poppkúltúr | 20. nóvember 2023

Adele er gift kona

Adele er gift kona. Breska söngkonan staðfesti þrálátan orðróm þess efnis að hún væri gift á dögunum. Atvikið átti sér stað á uppistandi góðvinar hennar Alan Carr í Los Angeles. 

Adele er gift kona

Poppkúltúr | 20. nóvember 2023

Rich Paul og Adele.
Rich Paul og Adele. AFP

Adele er gift kona. Breska söngkonan staðfesti þrálátan orðróm þess efnis að hún væri gift á dögunum. Atvikið átti sér stað á uppistandi góðvinar hennar Alan Carr í Los Angeles. 

Adele er gift kona. Breska söngkonan staðfesti þrálátan orðróm þess efnis að hún væri gift á dögunum. Atvikið átti sér stað á uppistandi góðvinar hennar Alan Carr í Los Angeles. 

Carr spurði áhorfendur í sal hvort að einhver hefði gift sig nýverið og Adele hrópaði hátt: „Já, ég!“ við mikinn fögnuð nærstaddra. Er þetta í annað sinn sem Adele gengur í hjónaband og það með leynd. 

Adele og umboðsmaðurinn Rich Paul opinberuðu samband sitt í júlí 2021, en söngkonan hefur sést með demantshring á vinstri baugfingri í rúmt ár. Hún var áður gift Simon Konecki og á með honum eitt barn. 

mbl.is