Stjörnurnar sem fundu ástina árið 2023

Ást | 30. desember 2023

Stjörnurnar sem fundu ástina árið 2023

Ástin blómstraði hjá nokkrum af skærustu stjörnum Hollywood á árinu sem tóku því fagnandi að hafa fundið betri helminginn. Tónlistarkonan Taylor Swift og NFL-kappinn Travis Kelce gerðu allt vitlaust eftir að þau fóru að stinga samannefjum, TikTok-stjarnan Alix Earle opinberaði loksins sambandið við NFL-kappann á meðan raunveruleikastjarnan Kylie Jenner sást í hörku sleik við leikarann Timothée Chalamet á Beyoncé tónleikum. 

Stjörnurnar sem fundu ástina árið 2023

Ást | 30. desember 2023

Ástin virðist blómstra í Hollywood!
Ástin virðist blómstra í Hollywood! Samsett mynd

Ástin blómstraði hjá nokkrum af skærustu stjörnum Hollywood á árinu sem tóku því fagnandi að hafa fundið betri helminginn. Tónlistarkonan Taylor Swift og NFL-kappinn Travis Kelce gerðu allt vitlaust eftir að þau fóru að stinga samannefjum, TikTok-stjarnan Alix Earle opinberaði loksins sambandið við NFL-kappann á meðan raunveruleikastjarnan Kylie Jenner sást í hörku sleik við leikarann Timothée Chalamet á Beyoncé tónleikum. 

Ástin blómstraði hjá nokkrum af skærustu stjörnum Hollywood á árinu sem tóku því fagnandi að hafa fundið betri helminginn. Tónlistarkonan Taylor Swift og NFL-kappinn Travis Kelce gerðu allt vitlaust eftir að þau fóru að stinga samannefjum, TikTok-stjarnan Alix Earle opinberaði loksins sambandið við NFL-kappann á meðan raunveruleikastjarnan Kylie Jenner sást í hörku sleik við leikarann Timothée Chalamet á Beyoncé tónleikum. 

Taylor Swift og Travis Kelce

Tónlistarkonan Taylor Swift og NFL-kappinn Travis Kelce eru líklega heitasta og umtalaðasta nýja parið í Hollywood árið 2023. Orðrómur um samband þeirra fór fyrst á kreik í september síðastliðnum, en söngkonan hefur verið dugleg að mæta á leiki og styðja Kelce í NFL-deildinni. Þau opinberuðu svo loksins sambandið í október.

Alix Earle og Braxton Berrios

TikTok-stjarnan Alix Earle og NFL-stjarnan Braxton Berrios voru fyrst orðuð við hvort annað í maí þegar þau sáust á stefnumóti í Miami í Flórída. Eftir nokkra mánuði af miklum vangaveltum meðal aðdáenda þeirra opinberuðu þau loksins sambandið í nóvember.

Bradley Cooper og Gigi Hadid

Í október var greint frá því í fjölmiðlum að leikarinn Bradley Cooper og ofurfyrirsætan Gigi Hadid væru að stinga saman nefjum. Þau eru sögð eiga margt sameiginlegt þrátt fyrir 20 ára aldursbil.

Harry Styles og Taylor Russell

Það vakti mikla athygli þegar greint var frá því að tónlistarmaðurinn Harry Styles hefði fundið ástina í nóvember síðastliðnum. Sú heppna er kanadíska leikkonan Taylor Russell, en sögusagnir um samband þeirra fóru á kreik í ágúst þegar þau sáust saman á lista- og leiksýningum í Lundúnum.

Kylie Jenner og Timothée Chalamet

Netheimar loguðu síðastliðið vor þegar fregnir bárust af því að raunveruleikastjarnan Kylie Jenner og leikarinn Timothée Chalamet væru að stinga saman nefjum. Í sumar var hins vegar greint frá því að sambandið væri ekki alvarlegt en það breyttist í september þegar þau mættu á fyrsta opinbera viðburðinn saman og deildu sjóðheitum kossi.

Dua Lipa og Romain Gavras

Tónlistarkonan Dua Lipa og franski leikstjórinn Romain Gavras léku frumraun sína sem par á rauða dreglinum á kvikmyndahátíðinni í Cannes í maí síðastliðnum. Samband þeirra vakti strax mikla athygli vegna aldursbilsins, en Lipa er 27 ára á meðan Gavras er 41 árs. 

Maya Jama og Stormzy

Sjónvarpskonan Maya Jama og tónlistarmaðurinn Stormzy fundu ástina í örmum hvors annars rúmum fjórum árum eftir dramatísk sambandsslit þeirra. Parið byrjaði fyrst saman árið 2015 en leiðir þeirra skildu svo árið 2019. Nú hafa þau hins vegar tekið saman aftur.

Gerard Piqué og Clara Chia Marti

Árið byrjaði með trompi þegar fótboltamaðurinn Gerard Piqué opinberaði nýju ástina, hina 23 ára gömlu Clöru Chiu Marti, eftir meint framhjáhald. Piqué er fyrrverandi kærasti tónlistardívunnar Shakiru, en sögur segja að neistinn milli Piqué og Marti hafi kviknað á meðan hann var enn með Shakiru.

Lewis Capaldi og Ellie MacDowall

Í febrúar frumsýndi tónlistarmaðurinn Lewis Capaldi nýju kærustuna sína, Ellie MacDowall, í partíi eftir bresku tónlistarverðlaunin. Parið hafði þá verið saman í nokkra mánuði en höfðu ákveðið að halda sambandinu fjarri sviðsljósinu til að byrja með.

Paulina Porizkova og Jeff Greenstein

Ofurfyrirsætan Paulina Porizkova kom aðdáendum sínum á óvart í maí þegar hún deildi mynd af nýju ástinni. Sá heppni heitir Jeff Greenstein og er sjónvarpshöfundur og framleiðandi, en þau höfðu verið saman í þrjá mánuði þegar hún opinberaði sambandið á Instagram. 

mbl.is