Friðrik er konungur í Danmörku

Kóngafólk í fjölmiðlum | 14. janúar 2024

Friðrik er konungur í Danmörku

Mar­grét Þór­hild­ur Dana­drottn­ing hefur formlega látið af völdum. Sonur hennar, Friðrik tíundi, er nýr konungur í Danmörku.

Friðrik er konungur í Danmörku

Kóngafólk í fjölmiðlum | 14. janúar 2024

Friðrik tíundi Danakonungur og Mary drottning á svölum Kristjánsborgarhallar í …
Friðrik tíundi Danakonungur og Mary drottning á svölum Kristjánsborgarhallar í dag. AFP/Jonathan Nackstrand

Mar­grét Þór­hild­ur Dana­drottn­ing hefur formlega látið af völdum. Sonur hennar, Friðrik tíundi, er nýr konungur í Danmörku.

Mar­grét Þór­hild­ur Dana­drottn­ing hefur formlega látið af völdum. Sonur hennar, Friðrik tíundi, er nýr konungur í Danmörku.

AFP/Jonathan Nackstrand


Meira en 100 þúsund manns voru í miðborg Kaupmannahafnar af  þessu tilefni í dag og fylgdist með Margréti Þórhildi fara frá Kristjánsborgarhöll eftir að hafa afsalað sér krúninni með formlegum hætti. Þar með lýkur 52 ára valdatíð Margrétar Þórhildar. Þegar hún yfirgaf höllina sagði hún tárvotum augum: „Guð varðveiti konunginn.“

Mikill mannfjöldi var samankominn í miðborg Kaupmannahafnar í dag.
Mikill mannfjöldi var samankominn í miðborg Kaupmannahafnar í dag. AFP/Mads Claus Rasmussen

Í kjölfarið steig Friðrik konungur út á svalir Kristjánsborgarhallar og veifaði til viðstaddra. „Móður minni tókst það sem fáum hefur tekist, að verða samofin þjóð sinni,“ sagði hann í ávarpi og bætti því við að hann vonaðist eftir því að geta verið sameiningartákn í framtíðinni.

mbl.is