Þrír létust og einn er alvarlega særður eftir skotárás í Alberta-háskóla í borginni Edmonton í vesturhluta Kanada í morgun.
Þeir sem létust voru allir starfmenn fyrirtækis sem gerir út brynvarðar bifreiðar.
Talið er að árásin tengist ránstilraun. Skotmaðurinn eða -mennirnir eru ófundnir, en svæðið hefur verið lokað af.