Umhverfishætta af stjórnlausu skipi í Atlantshafi

Gömul mynd af rússneska skemmtiferðaskipinu MV Lyubov Orlova sem rekur …
Gömul mynd af rússneska skemmtiferðaskipinu MV Lyubov Orlova sem rekur nú stjórnlaust um Atlantshafið. AFP

Rússneskt skemmtiferðaskip, sem rekur nú stjórnlaust um Atlantshafið eftir misheppnaða tilraun til að koma því í brotajárn, er yfirvofandi hætta við umhverfið að mati franskra umhverfisverndarsinna.

Skipið, sem er 100 metra langt og nefnt Lyubov Orlova eftir rússneskri kvikmyndastjörnu á 4. áratugnum, rekur um alþjóðlegt hafssvæði undan ströndum Kanada. Tvær misheppnaðar tilraunir hafa verið gerðar til að draga það að landi og koma því í brotajárn.

Engin áhöfn er um borð og engin viðvörunarljós loga. Frönsku umhverfisverndarsamtökin Robin des Bois benda á að verði árekstur eða ef leki komið að skipinu muni eldsneyti, eitraðir vökvar, asbest, kvikasilfur og fleira óendurvinnanleg efni komast út í umhverfið.

Skipið, sem var byggt árið 1976, fór úr höfn í Kanada í togi þann 23. janúar. Til stoða að flytja það til Dóminíska lýðveldisins, en taugin slitnaði eftir einn sólarhring. Birgðaskip fyrir nálæga olíuvinnslu tók það þá í tog en aftur slitnaði taugin.

Ekki er vitað nákvæmlega hvar á haffletinum Lyubov Orlova er núna en sérfræðingar segja að það gæti verið á reki í átt að Írlandi. Skipið hefur staðið yfirgefið í Kanada í tvö ár og kanadísk stjórnvöld segja að það sé ekki á þeirra ábyrgð eftir að það fór út fyrir landhelgi ríkisins.

Áhöfn skipsins, 44 Rússar, varð innlyksa í Kanada í 3 mánuði árið 2010 þegar eigandi þess fór á hausinn. Heimamenn gáfu skipverjunum mat og söfnuðu handa þeim fé svo þær gætu komist aftur til síns heima.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert