Kalla sendiherrann heim

Margot Wallström, utanríksiráðherra Svíþjóðar ásamt finnska starfsbróður sínum Erkki Tuomioja
Margot Wallström, utanríksiráðherra Svíþjóðar ásamt finnska starfsbróður sínum Erkki Tuomioja AFP

Yfirvöld í Sádi-Arabíu hafa kallað sendiherra sinn heim frá Stokkhólmi eftir að utanríkisráðuneyti Svíþjóðar tilkynnti um að vopnasölusamningur ríkjanna yrði ekki endurnýjaður. 

Í samtali við AFP fréttastofuna segir talsmaður stjórnvalda í Sádi-Arabíu að ekki sé verið að slíta stjórnmálasambandi við Svíþjóð heldur aðeins verið að kalla sendiherrann heim.

Forsætisráðherra Svíþjóðar, Stefan Löfven, tilkynnti seint í gærkvöldi að vopnasölusamningurinn yrði ekki framlengdur og kemur tilkynningin í kjölfar þess að utanríkisráðherra Svíþjóðar,  Margot Wallström, var ekki lengur velkomin á ráðstefnu Arababandalagsins. Voru það Sádar sem komu í veg fyrir að hún myndi ávarpa ráðstefnuna vegna afstöðu hennar í mannréttindamálum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert