Gætu hafa klúðrað innbrotinu

Hjónin Kate og Gerry McCann með tölvugerða mynd af dóttur …
Hjónin Kate og Gerry McCann með tölvugerða mynd af dóttur sinni. AFP

Hugsanlegt er að Madeleine McCann hafi verið rænt af hópi þjófa sem klúðruðu innbroti. Þetta segir lögregla í Bretlandi sem hefur ákveðinn hóp í huga. Einn þeirra vann á sumarleyfisstaðnum þar sem fjölskylda stúlkunnar var í fríi þegar hún var numin á brott árið 2007.

Lögregla telur að maðurinn, sem keyrði rútu sem ætluð var ferðamönnum, hafi verið hluti af fjögurra manna hópi. Talið er að þeir hafi ætlað að brjótast inn í íbúð fjölskyldunnar en gögn úr farsímum mannanna sýna að þeir voru á staðnum þetta kvöld.

Lögregla vill ræða við þrjá úr hópnum en þeir hafa áður verið yfirheyrðir vegna málsins. Þá viðurkenndu þeir þjófnað úr húsum í nágrenninu. Brotist var inn í tvær íbúðir á svæðinu tveimur vikum áður en fjölskylda Madeleine kom.

Tæplega níu þúsund ábendingar hafa borist frá fólki sem telur sig hafa séð stúlkuna frá því að hún hvarf fyrir tæplega tíu árum.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert