Móðir og þrjú börn meðal látinna

Crystal og John Holcombe ásamt börnum sínum fimm. Crystal gekk …
Crystal og John Holcombe ásamt börnum sínum fimm. Crystal gekk með barn þeirra hjóna þegar hún var skotin til bana í árás í gær. Af Facebook

John Holcombe fór ásamt konu sinni, fimm börnum og foreldrum til kirkju í gær. Eiginkona hans, sem var komin átta mánuði á leið, þrjú börn hans og foreldrar eru meðal þeirra sem voru skotin til bana af Devin Kell­ey í gær.

Þrjú barna þeirra Crystal og Johns; Megan, Emily og Greg, létust öll í árásinni en tvær dætur þeirra eru með alvarlega áverka á sjúkrahúsi.

 

 

Norska ríkisútvarpið, AP og New York Times greina frá þessu. Fólkið sem lést í árásinni er á aldrinum 5 til 72 ára og samkvæmt upplýsingum sem San Antonio Express-News hefur eftir bæjarbúa missti náinn vinur hans átta ættingja í árásinni. Ekki er vitað hvort þar er átt við Holcombe-fjölskylduna en einhverjir miðlar greina frá því að bróðir Johns hafi látist ásamt dóttur sinni í skotárásinni. 

Dóttir prestsins, Annabelle Pomeroy, 14 ára, er meðal þeirra sem létust og vitað er að tvö börn særðust lífshættulega. Yfir 20 særðust og er hluti þeirra í lífshættu.

„Sutherland Springs er smábær þar sem allir þekkja alla,“ segir L.G. Moore, sem rekur Holiday RV Park, sem er skammt frá kirkjunni. Allir bæjarbúar þekktu einhvern sem lést í árásinni bætti hann við í samtali við AP.

„Þeir segja að bæjarbúar séu 400 talsins og þá telurðu með hverja skepnu, hunda og ketti. Sennilega eru bæjarbúar ekki meira en 200 talsins,“ bætir hann við.

CNN

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert