Kanadísk kona hefur verið dæmd fyrir að myrða vinkonu sína fyrir tveimur árum en það var sjálfsmynd (selfie) á samfélagsmiðlum sem kom lögreglu á sporið.
Cheyenne Rose Antoine, sem er 21 árs, var dæmd í sjö ára fangelsi fyrir manndráp í Kanada í gær eftir að hafa játað að hafa drepið Brittney Gargol, sem var 18 ára gömul, í Kanada fyrir tveimur árum í heimalandinu.
Gargol fannst látin skammt frá landfyllingu í Saskatoon, Saskatchewan. Banamein hennar var kyrking en belti sem notað var við verknaðinn fannst skammt frá líkinu. Antoine fékk stöðu sakbornings í málinu eftir að hún birti mynd á Facebook af þeim vinkonum þar sem hún var með beltið á sér. Myndin var tekin nokkrum klukkutímum áður en Gargol lést.
Að sögn Antoine man hún ekkert eftir því að hafa drepið Gargol en samkvæmt frétt BBC á hún samt að hafa komið viti sínu fjær til vinkonu sinnar og sagt að hún hafi barið Gargol og kyrkt hana. Þær hafi verið drukknar og rifist með þessum afleiðingum.