Frönsk yfirvöld ákærðu í dag 33 ára gamlan karlmann sem hafði lýst yfir stuðningi við Ríki íslams í myndskeiði og hafði í hyggju að fremja hryðjuverk í landinu.
Maðurinn hafði ekki áður komist í kast við lögin en hann var handtekinn í grennd við Nimes í suðurhluta Frakklands á þriðjudag. Efni til sprengjugerðar fundust í húsi hans en við leit fundust engar áætlanir um væntanlega sprengjustaði.
„Þetta er fyrsta árásin sem við komum í veg fyrir í ár,“ sagði einn þeirra sem rannsaka málið við AFP-fréttastofuna.
Rannsakendur lögðu hald á nokkur myndskeið sem maðurinn birti á samfélagsmiðlum þar sem hann lýsir yfir stuðningi við Ríki íslams og leiðtoga þeirra, Abu Bakr al-Baghdadi.