Leitaði að hengingum, kvölum og sársauka

Jakob Buch-Jepsen saksóknari.
Jakob Buch-Jepsen saksóknari. AFP

Jakob Buch-Jep­sen sak­sókn­ari segir að það sé ekki alveg ljóst hvernig Kim Wall dó. Ljóst er að höfuð hennar var höggvið af búknum en sönnunargögn benda einnig til þess að hún hafi verið kyrkt.

Réttarhöld yfir Peter Madsen hófust í morgun en hann er ákærður fyrir að hafa myrt Kim Wall í ágúst í fyrra. Þar kom meðal annars fram að Madsen skoðaði myndskeið af óþekktri konu sem verið var að skera á háls áður en hann hitti Kim Wall.

Peter Madsen.
Peter Madsen. AFP

Sími Madsen hefur enn ekki fundist en þrátt fyrir það hefur tekist að endurskapa það sem hann skoðaði í honum fram til 10. ágúst. Auk áðurnefnds myndskeiðs leitaði Madsen að hengingum, kvölum og sársauka á leitarvefjum innan við sólarhring áður en hann hitti Wall.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert