Vladimír Pútín sigraði með yfirburðum í forsetakosningunum sem fram fóru í Rússlandi í gær. Nú þegar 99,8% atkvæða hafa verið talin fékk hann að sögn kjörnefndar 76,67% atkvæða.
Pútín hefur haldið um valdataumana í Rússlandi, annað hvort sem forsætisráðherra eða forseti, í hartnær tvo áratugi. Hann hefur aldrei fyrr hlotið viðlíka stuðning til forsetaembættisins. Frambjóðandinn sem komst næst honum var Palvel Grudinin sem fékk um 12% atkvæða.
Helsta stjórnarandstæðingi Rússlands, Alexei Navalní, var bannað að taka þátt í kosningunum. Hann hafði hlotið skilorðsbundinn dóm fyrir fjármálamisferli. Navalní segir dóminn eiga sér pólitískar rætur.
Комиссия №268 в Кемерово решила, что шарики - хороший способ закрыть видеокамеру и спокойно приступить к подсчету https://t.co/zJSNxoH8i5 pic.twitter.com/qMwJCkTZO1
— Движение Голос (@golosinfo) March 18, 2018
Aldrei var því talinn nokkur vafi á því að Pútín færi með sigur af hólmi en úrslitin eru honum hagstæðari en kannanir höfðu sýnt.
Pútín sló á létta strengi með fréttamönnum í gærkvöldi. Þegar hann var spurður hvort hann ætlaði að bjóða sig fram enn einu sinni að sex árum liðnum hló hann og sagði: „Það sem þú ert að spyrja um er svolítið fyndið. Heldur þú að ég ætli að vera hér þar til ég verð hundrað ára? Nei!“
Í kosningunum árið 2012 hlaut Pútín 64% atkvæða.
Mikið var fjallað um meint kosningasvindl í gær. Á myndböndum sem dreift var á netinu mátti t.d. sjá fólk standa við kosningavélarnar og setja í þær mörg atkvæði. Ella Pamfilova, sem fer fyrir kjörnefndinni, segir að engin alvarleg brot hafi átt sér stað.
Every free world leader who congratulates Putin on his "election" is complicit in his global war on democracy. They undermine their own status as freely elected leaders.
— Garry Kasparov (@Kasparov63) March 18, 2018