Byrlaði leikkonunni ólyfjan

Bandaríski leikarinn Bill Cosby byrlaði leikkonunni Heidi Thomas ólyfjan í víni sem gerði hana syfjaða í fjóra daga árið 1984. Þetta kom fram í vitnisburði hennar við réttarhöldin sem nú standa yfir leikaranum.

Thomas segist hafa vaknað upp með Cosby nakinn sér við hlið þar sem hann var að reyna að þröngva sér inni í hana. Hún er ein fimmtíu kvenna sem hafa sakað hann um kynferðislegt ofbeldi.

Ný réttarhöld hófust yfir Cosby í vikunni þar sem hann er ákærður fyrir að hafa beitt fyrrverandi körfuboltaleikmanninn Andreu Constand kynferðislegu ofbeldi. Cosby neitar sök.

Thomas segir að Cosby hafi beðið hana um að lesa texta þar sem persónan var drukkin. Hann hafi hvatt hana til þess að þiggja glas af hvítvíni áður en lesturinn hófst. Hún segir að nánast allt sé í móðu varðandi þessa fjóra daga fyrir utan að hafa vaknað upp í rúmi með Cosby. Hún í fötum en hann klæðalaus að reyna að þröngva kynfærum sínum upp í munn hennar. 

Heidi Thomas.
Heidi Thomas. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert