Lögreglan í Anchorage í Alaska lýsir eftir íkorna sem stal kleinuhring af lögregluþjóni á bílastæði í borginni.
Á Facebook-síðu lögreglunnar er birt myndskeið þar sem sjá má íkornann við þessa iðju sína. Svo virðist sem um sé að ræða kleinuhring með glassúr. Íkorninn beit fast í sætabrauðið og flúði svo skoppandi af vettvangi.
Lögreglan segir hér um einbeittan brotavilja að ræða svo ekki sé talað um dónaskap.