„Hetjuhundur“ bjargaði eiganda sínum

Todd var mjög bólginn eftir bit skröltormsins.
Todd var mjög bólginn eftir bit skröltormsins. Af Facebook

Er eigandi hans hafði næstum því stigið ofan á skröltorm í morgungöngu skammt frá heimili þeirra í Arizona vissi hundurinn Todd nákvæmlega hvað hann þyrfti að gera. Hann stökk fyrir framan eigandann, Paulu Godwin, og kom þannig í veg fyrir að skröltormurinn biti hana í fótinn. Þess í stað sökkti snákurinn eitruðum tönnum sínum í trýnið á Todd. 

Todd er aðeins sex mánaða en viðbrögð hans hafa orðið til þess að nú er hann kallaður hetja, segir í frétt Telegraph um málið. Godwin sagði frá hetjudáðinni á Facebook og birti mynd af bólgnu trýni Todds.

„Er við gengum niður hæðina steig ég næstum því ofan á skröltorm. En hetjan mín hann Todd bjargaði mér,“ skrifaði hún.

Todd ýlfraði mikið af kvölum eftir bitið. Godwin greip hann í fangið og fór þegar með hann á næsta dýraspítala þar sem honum voru gefin mótefni. Hann fékk svo að fara heim hálfum sólarhring síðar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert