100 hælisleitendur hið minnsta drukknuðu úti fyrir ströndum Líbýu er gúmmíbátur sökk í byrjun mánaðar, að sögn hjálparsamtakanna Læknar án landamæra.
Samtökin segja tvo gúmmíbáta hafa lagt af stað frá Líbýu 1. september sl. Gat kom á annan bátinn sem sökk í kjölfarið.
276 manns, sem björguðust, voru fluttir til líbýsku hafnarborgarinnar Khoms og er fólkið þar nú í varðhaldi, sem BBC hefur eftir Læknum án landamæra að byggist á geðþóttaákvörðun.
Rúmlega 1.500 manns hafa farist það sem af er þessu ári við að reyna að komast yfir Miðjarðarhafið samkvæmt tölum frá flóttamannaskrifstofu Sameinuðu þjóðanna (IOM).