Theresa May, forsætisráðherra Bretlands, segist munu berjast gegn vantrauststillögu þingmanna í sinn garð af öllum kröftum, að því er BBC greinir frá. Greint var frá því nú í morgun að þingmenn Íhaldsflokksins greiði í kvöld atkvæði um það hvort lýsa eigi yfir vantrausti gegn May.
48 þingmenn höfðu þá skilaði inn vantraustsyfirlýsingu í garð May, en það er forsenda þess að vantrauststillaga gegn forsætisráðherra sé tekin fyrir.
Í yfirlýsingu sem May sendi frá sér í kjölfarið segir hún: „Ég mun berjast gegn þessari atkvæðagreiðslu af öllum mínum kröftum.“ Sagði hún nýjan forsætisráðherra verða annaðhvort að framlengja eða hætta við 50. viðauka Lissabon-sáttmálans sem fjallar um útgöngu úr ESB. Muni slíkt að mati May annaðhvort seinka eða jafnvel stöðva fyrirhugaða útgöngu Bretlands úr ESB.
Sagði forsætisráðherrann að verði ákveðið að skipta um leiðtoga Íhaldsflokksins sé „framtíð landsins stefnt í hættu og sköpuð óvissa þegar við höfum síst efni á því“.
„Þær vikur sem við rífumst innbyrðis munu bara auka klofning á þeim tíma sem við ættum að vera sameinuð í að verja land okkar. Slíkt mun ekki þjóna hagsmunum þjóðarinnar,“ sagði í yfirlýsingunni.
Fullyrti May því næst að viðræður hennar við leiðtoga ESB væru að skila árangri og hét því að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu og grípa tækifærin sem séu fram undan.
Íhaldsflokkurinn verði að reisa framtíð sem virki fyrir alla og veita þjóðinni útgönguna sem hún kaus um.
„Ég hef helgað mig þessu verkefni á ósérhlífinn hátt frá því ég tók við sem forsætisráðherra og er tilbúin að ljúka verkinu.“
May verður að fá meirihluta atkvæða eigi hún að halda stöðu sinni. Fái hún nauðsynlegan meirihluta geta þingmenn flokksins ekki lýst yfir vantrausti í garð May næsta árið. Verði úrslit hins vegar á hinn veginn verður flokksforystan dregin í efa og mun hún þá þurfa að segja af sér.
Fari May með nauman sigur af hólmi í atkvæðagreiðslunni getur þó einnig farið svo að hún ákveði að segja af sér.