Fremur rólegt var yfir hafnarborginni Hodeida í Jemen í morgun eftir að til harðra bardaga kom í gær þrátt fyrir vopnahlé hefði tekið gildi fyrr um daginn.
Stríðandi fylkingar samþykktu vopnahlé í friðarviðræðum sem fram fóru í Svíþjóð í síðustu viku. Heimildir AFP fréttastofunnar herma að friður hafi ríkt í borginni frá klukkan 3 í nótt.
Átökin í Jemen hófust með uppreisn húta sem njóta stuðnings klerkastjórnarinnar í Íran. Hútar hafa náð stórum hluta Jemens á sitt vald, meðal annars höfuðborginni Sanaa. Sádi-Arabía og fleiri arabaríki styðja ríkisstjórn Abedrabbo Mansour Hadi og hafa gert loftárásir á yfirráðasvæði uppreisnarmannanna og notið stuðnings stjórnvalda í Bandaríkjunum, Bretlandi og Frakklandi.
Staðan í Jemen er skelfileg og telja Sameinuðu þjóðirnar að hvergi í heiminum sé neyðin jafn mikil en óttast er að hungursneyð blasi við 14 milljónum Jemena. Báðar fylkingar hafa heitið því að standa við vopnahléið en stjórn borgarinnar verður undir stjórn Sameinuðu þjóðanna á næstunni.
Íbúar Hodeida eru vongóðir um að friður ríki í borginni á næstunni en hún er afar mikilvæg varðandi innflutning til landsins.