Alex Salmond, fyrrverandi forsætisráðherra skosku heimastjórnarinnar og fyrrverandi leiðtogi Skoska þjóðarflokksins, hefur verið handtekinn og ákærður vegna ásakana um kynferðislegt ofbeldi. Tvær ákærur hafa verið lagðar fram gegn Salmond sem verður leiddur fyrir dómara síðar í dag.
Salmond var í ágúst sakaður um kynferðislega áreitni í skoska dagblaðinu Daily Record og samkvæmt frétt blaðsins var lögreglan ítrekað beðin um að rannsaka ásakanir á hendur honum. Salmond vísaði ásökunum á bug og höfðaði mál gegn skoskum stjórnvöldum vegna rannsóknar sem ráðist var í vegna þeirra.
Dómstóll í Edinborg úrskurðaði á dögunum að skosk yfirvöld hefðu ekki farið að lögum við rannsókn á meintum kynferðisbrotum Salmonds. Lögreglan hóf þá sjálfstæða rannsókn á málum tveggja kvenna sem saka Salmond um kynferðislega áreitni og var niðurstaða rannsóknarinnar send ákæruvaldinu í Skotlandi.
Salmond sagði sig úr flokknum í kjölfar ásakana en hann sagðist ætla að hreinsa nafn sitt af ásökunum og skrá sig aftur í flokkinn að því loknu.