Að minnsta kosti einn er látinn og fjölmargir særðir eftir skotárás í sporvagni í borginni Utrecht í Hollandi í morgun. Hæsta viðbúnaðarstigi vegna hryðjuverkaógnar hefur verið lýst yfir í borginni.
AFP-fréttastofan greinir frá því að fórnarlambið hafi verið vafið inn í lök og lá á teinunum milli tveggja sporvagna. Yfirvöld hafa ekki enn staðfest að fólk hafi látið lífið í árásinni.
Talið er að árásarmaðurinn hafi verið einn að verki og er hann á flótta undan lögreglu, sem útilokar ekki að um hryðjuverk hafi verið að ræða. Haft er eftir sjónarvotti í frétt BBC að maðurinn hafi skotið eins og óður í allar áttir. Ekki hefur þó verið útilokað að hann eigi sér vitorðsmenn. Pieter-Jaap Aalbersberg, yfirmaður hryðjuverkavarna í Hollandi, hefur virkjað sérstakt hryðjuverkateymi til að hafa uppi á árásarmanninum.
Laust fyrir klukkan 12 á hádegi hafði lögreglan umkringt byggingu þar sem talið er að árásarmaðurinn haldi sig.
Mark Rutte, forsætisráðherra Hollands, hefur aflýst öllum fundum sínum í dag og segir í samtali við RTL-fréttastofuna að hann sé áhyggjufullur vegna fregna af árásinni. Líklegt er talið að ríkisstjórnin muni koma saman á neyðarfundi síðar í dag.
Premier Rutte over de gebeurtenissen in Utrecht: "Coalitieoverleg is onderbroken. Ik maak me grote zorgen." pic.twitter.com/VlkMBDC6Ph
— RTL Nieuws (@RTLnieuws) March 18, 2019