Feðgar drukknuðu við að reyna að bjarga ferðamanni sem alda hafði hrifið á haf út við suðurströnd Ástralíu í gær.
Ross Powell, 71 árs og Andrew, 32 ára gamall sonur hans, létust eftir að bát þeirra hvolfdi í brimi við að reyna að bjarga þrítugum ferðamanni sem hafði hunsað viðvörunarskilti og var að vaða í flæðarmálinu skammt frá var í vanda skammt frá Twelve Apostles (kalksteinaþyrpingu við strönd Victoria-ríkis). Nafn og þjóðerni ferðamannsins hefur ekki verið gefið upp en honum var bjargað á land sem og þriðja manninum um borð í björgunarbátnum. Sá er alvarlega slasaður og var fluttur á sjúkrahús með þyrlu.
Feðgarnir voru frá smábæ þar skammt frá, Port Campbell, og hefur forsætisráðherra Ástralíu, Scott Morrison, lýst þeim sem hetjum.
Powell-feðgarnir ráku saman mjólkurbú og voru þrautþjálfaðir björgunarsveitarmenn en aðstæðurnar voru einfaldlega skelfilegar segir yfirmaður björgunarmála í Victoria.
Eiginkona Andrew, Amber Griffiths, er þunguð af öðru barni þeirra hjóna en hún tjáði sig um harmleikinn á Facebook í gær.