Illa farin lík tvítalin

Vopnaðir hermenn í Colombo, höfuðborg Sri Lanka.
Vopnaðir hermenn í Colombo, höfuðborg Sri Lanka. AFP

Yfirvöld á Sri Lanka greindu frá því fyrir stundu að fjöldi þeirra sem fórust í hryðjuverkaárásunum á sunnudag hefði lækkað úr 359 í 253.

Þau segja að sum líkin hafi verið svo illa farin að þau hafi verið talin tvisvar.

Heilbrigðisyfirvöld segja að skoðun á þeim sem fórust hafi lokið seint í gær. Þá hafi komið í ljós að sum lík hafi verið tvítalin.

Það hafi gert það að verkum að tala látinna hafi lækkað um 106, úr 359 í 253.

Fórnarlambanna hefur verið minnst víða um heim.
Fórnarlambanna hefur verið minnst víða um heim. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert