Þrjú eru í haldi lögreglu í tengslum við sprengjutilræði í frönsku borginni Lyon á föstudag. 24 ára gamall Alsírbúi er grunaður um að hafa komið sprengjunni fyrir en hann var handtekinn ásamt móður sinni og alsírskum námsmanni sem er vinur fjölskyldunnar, segir í tilkynningu frá saksóknara.
Tilræðismaðurinn er nemandi í upplýsingatæknifræði og hefur ekki áður komist í kast við lögun, segir borgarstjórinn í Lyon, Gerard Collomb. Systir hans hefur einnig verið yfirheyrð en ekki handtekin.