Bendir ekkert til kynþáttahaturs

Blómum, myndum og kertum hefur verið komið fyrir við árásarstaðinn …
Blómum, myndum og kertum hefur verið komið fyrir við árásarstaðinn í minningu þeirra níu sem létust í skotárásinni í Dayton. AFP

Lögregla í Dayton í Ohio segir ekkert benda til þess að kynþáttahatur hafi verið ástæða skotárásar sem gerð var utan við bar í borginni aðfaranótt sunnudags og kostaði níu manns lífið.

Bandarískir fjölmiðlar hafa sagt árás­ar­mann­inn hafa verið  24 ára mann að nafni Conn­or Betts sem hóf að skjóta með alsjálfvirkum riffli utan við bar í Or­egon-hverfi borg­ar­inn­arLög­reglu­menn sem voru í hefðbund­inni eft­ir­lits­ferð um hverfið voru komn­ir á staðinn inn­an við mín­útu eft­ir að fyrsta skotið reið af og felldu árás­ar­mann­inn.

„Byggt á þeim upplýsingum sem við höfum núna, þá sjáum við engar vísbendingar um að tilefnið tengist kynþáttahyggju,“ sagði Richard Biehl lögreglustjóri Dayton.

Fjölmargir komu saman og tóku þátt í minningarathöfn um þá …
Fjölmargir komu saman og tóku þátt í minningarathöfn um þá sem létust í skotárásinni. AFP

Sex af þeim níu sem létust í árásinni voru svartir og sagði Biehl því engu að síður of snemmt að útiloka að kynáttahatur ætti hlut að máli. „Við erum ekki búin að fara yfir öll sönnunargögnin og þar til við höfum gert það getum við ekki útilokað það,“ sagði hann.

Systir árásarmannsins var meðal þeirra sem létust í árásinni.

Lögreglustjórinn sagði skothylki sem fundust í fórum árásarmannsins gefa til kynna að hann hefði geta skotið allt að 250 skotum, hefði hann ekki verið drepinn af lögreglumönnum innan við mínútu eftir að hann hóf árásina.

Sagði Biehl skotvopn af þessari gráðu í höndum almenns borgara vera „í grundvallaratriðum vandamál“.

Meðal þeirra tæplega 30 sem særðust í árásinni fengu 14 í sig skot, m.a. vinur systurinnar. Sagði Biehl hann vera aðstoða lögreglu við rannsóknina.

Árásarmaðurinn hafði komið með systur sinni og vini hennar í Oregon, sem er skemmtanahverfi borgarinnar, en síðan sagt skilið við þau.

Árásin í Dayton átti sér stað 13 tímum eftir að annar árásarmaður hóf skothríð í Walmart verslun í El Paso sem nú hefur kostað 22 lífið. Hann hafði áður birt stefnu­yf­ir­lýs­ingu, mani­festó, þar sem hann fjallaði meðal ann­ars um það sem hann kallaði „inn­rás“ fólks frá rómönsku Am­er­íku í Texas-ríki. Lögregla í El Paso segir um hryðjuverk að ræða og hefur sá árásarmaður verið ákærður fyrir morð og kann að eiga dauðarefsingu yfir höfði sér.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert