Tyrknesku landsliðsmennirnir í knattspyrnu ögruðu Knattspyrnusambandi Evrópu, UEFA, aftur í gærkvöldi þegar þeir heilsuðu að hermannasið í 1:1-jafnteflinu gegn Frakklandi í París. Markaskorari Tyrkja neitaði þó að taka þátt í umdeildum fagnaðarlátunum.
UEFA er nú þegar með fagnaðarlæti Tyrkja gegn Albönum á föstudagskvöld til skoðunar en Tyrkir hafa sagt fagnaðarlætin til heiðurs „djörfum hermönnum landsins“ eftir að innrásin í Sýrland hófst í síðustu viku.
Þegar varnarmaðurinn Kaan Ayhan jafnaði metin á 82. mínútu í París í gær fagnaði hann á „hefðbundinn“ hátt fyrir framan um 3.800 tyrkneska stuðningsmenn.
Fyrirliðinn Burak Yilmaz fór síðan fyrir sínum mönnum þar sem þeir heilsuðu stuðningsmönnum að hermannasið og fólkið í stúkunni tók undir kveðjuna. Markaskorarinn Ayhan tók hins vegar ekki undir kveðjuna.
Varnarmaðurinn Merih Demiral hvatti Ayhan til að taka þátt og samkvæmt erlendum fréttamiðlum rifust leikmennirnir í smá stund vegna þess. Ayhan stóð fastur á sínu og skokkaði til baka á meðan margir félaga hans heiðruðu „djarfa hermenn Tyrklands“.