Bandaríski herinn rannsakar nú flugslys sem varð fyrr í dag þegar þota brotlenti í austurhluta Afganistan. Yfirvöld þar í landi segja að þotan, sem hrapaði í Ghazni-héraði, hafi verið í eigu ríkisflugfélagsins Ariana en forsvarsmenn þess segja að það sé ekki rétt. Allt flug flugfélagsins í dag hafi verið með eðlilegum hætti.
Stór hluti héraðsins er undir stjórn talíbana og hafa talíbanar birt mynd af braki flugvélar á samfélagsmiðlum sem merkt er bandaríska flughernum, vél af gerðinni Bombardier E-11A, sem bandaríski herinn notar til eftirlitsflugs í Afganistan.
Talsmaður bandaríska hersins gat ekki staðfest við AP-fréttastofuna að um þotu hersins væri að ræða.
Lögreglustjórinn í Ghazni segir engar fregnir hafa borist af mannfalli en eldur hafi komið upp í vélinni þegar hún brotlenti. Ekki hafi fengist staðfest hvort um farþegaþotu væri að ræða.