Lögreglustjóri segir af sér í kjölfar dauða Daniels Prudes

La'Ron Singletary hefur sagt af sér sem lögreglustjóri Rochester.
La'Ron Singletary hefur sagt af sér sem lögreglustjóri Rochester. AFP

Lögreglustjóri Rochester í New York-ríki hefur sagt af sér í kjölfar mótmæla vegna dauða Daniels Prudes, svarts karlmanns sem lést í haldi lögreglu í mars. 

Lovely Warren, borgarstjóri Rochester, tilkynnti á borgarráðsfundi í dag að lögreglustjóri og aðstoðarlögreglustjóri borgarinnar hefðu báðir tilkynnt afsögn sína. 

Pru­de lést á sjúkra­húsi í mars, viku eft­ir að lög­regluþjón­ar settu svo­kallaða hráka­hettu yfir höfuð hans og þvinguðu höfuð hans að göt­unni. Hett­an er hönnuð til að koma í veg fyr­ir að lög­regl­an fái yfir sig hráka þeirra sem eru í haldi. Hann átti við andleg veikindi að stríða og var stöðvaður af lögreglu þar sem hann hljóp klæðlaus um í snjókomu. 

AFP

Sjö lögregluþjónum hefur verið vikið frá störfum vegna málsins. Ríkissaksóknari New York, Letitia James, tilkynnti á laugardag að rannsókn myndi fara fram á dauða Prudes, sem var 41 árs. 

La'Ron Singletary, fráfarandi lögreglustjóri borgarinnar, segir umfjöllun um þær aðgerðir sem hann greip til í kjölfar dauða Prudes ranga og ekki byggða á staðreyndum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert