Borgarstjóri Lundúna, Sadiq Khan, hefur verið endurkjörinn í embættið. Sigraði hann frambjóðanda Íhaldsflokksins, Shaun Bailey, en Khan bauð sig fram fyrir Verkamannaflokkinn.
Hann var fyrst kjörinn til að gegna embætti borgarstjóra árið 2016.
Í kosningunum nú hlaut hann rétt rúmlega 1,2 milljónir atkvæða. Mjórra var á munum en stjórnmálaskýrendur höfðu spáð, en Bailey fékk samtals tæplega 978 þúsund atkvæði.