Hið minnsta sjö hafa látist og um 140 særst eftir að hermenn skutu á mannfjölda sem mótmælti valdatöku hersins í Súdan.
BBC greinir frá.
Mótmælendur héldu út á götur eftir að herinn leysti upp borgaralega stjórn, handtóku stjórnmálaleiðtoga og lýstu yfir neyðarástandi í dag.
Sagt er að hermenn hafi farið hús úr húsi í höfuðborginni Khartoum og handtekið mótmælendur og skipuleggjendur mótmæla. Valdaránið hefur verið fordæmt um allan heim og hafa Bandaríkin fryst 700 milljóna dala framlög til ríkisins.
Leiðtogar í ríkisstjórn og leiðtogar í hernum hafa átt í deilum frá því að Omar al-Bashir, sem lengi var þjóðarleiðtogi, var steypt af stóli fyrir tveimur árum.
Þegar rökkva tók í kvöld var mikill fjöldi mótmælenda á götum Khartoum – og fleiri borga – sem kröfðust þess að borgaraleg stjórn sæti áfram, að því er Mohamed Osman hjá BBC Arabic greinir frá í höfuðborginni.
Einn særður mótmælandi sagði blaðamönnum BBC að hann hefði verið skotinn í fótinn af hernum fyrir utan höfuðstöðvar hersins, á meðan annar maður lýsti því að herinn hefði fyrst skotið handsprengjum, síðan hleypt af byssum.