Macron segir Pútín neita að hætta

Macron ræddi við Pútín í dag.
Macron ræddi við Pútín í dag. AFP

Emmanuel Macron forseti Frakklands segist munu halda áfram að tala við Vladimír Pútín og reyna að koma í veg fyrir mannlegan harmleik.

Macron ræddi við Pútín í níutíu mínútur í dag, eins og mbl.is greindi frá, en slegið var á þráðinn frá Kreml til Élysée-hallar.

„Hann neitar að hætta árásum sínum á Úkraínu á þessum tímapunkti,“  skrifar hann í tísti um samtalið, og bætir við að hann muni reyna að halda samtalinu áfram.

„Við verðum að forðast það versta.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert