Pútín ferðast til Tehran

Pútín ásamt Raisi á ráðstefnu í síðasta mánuði.
Pútín ásamt Raisi á ráðstefnu í síðasta mánuði. AFP

Vladimír Pútín Rússlandsforseti ferðast til Tehran, höfuðborgar Írans, 19. júlí þar sem hann mun funda með Ebrahim Raisi, forseta Írans, og Recep Tayyip Erdogan, forseta Tyrklands.

„Heimsókn forsetans til Tehran er fyrirhuguð 19. júlí," sagði Dmitrí Peskov, talsmaður rússneskra stjórnvalda.

Hann bætti við að leiðtogarnir þrír ætli að ræða saman um frið í Sýrlandi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert